Hvað heldur þú um orsök hnattrænnar hlýnunar?
26.7.2014 | 07:00
Hnattræn hlýnun er staðreynd, en hverjar eru orsakir hennar? Rúmlega 97% af vísindamönnum telja hlýnun vera af manna völdum. Hinir halda að hlýnun sé náttúrufyrirbæri og óháð mengun mannkyns á lofthjúpnum. Meðal almennings í heiminum er svarið nokkuð annað, en það er misjafnt milli landa, eins og meðfylgjandi línurit sýnir fyrir tuttugu lönd. Það er í enskumælandi löndum (Bandaríkjunun, Bretlandi og Ástralíu) sem efasemdir eru mestar um áhrif mannsins á hlýnun jarðar. Það er í Kína, sem flestir trúa að hlýnun sé af manna völdum. Hið síðara kemur ekki á óvart, því hvergi í heiminum er mengun meiri en í Kína. Hvers vegna er almenningur í enskumælandi löndum svo tortrygginn á að hlýnun sé af manna völdum? Er það tilviljum, eða er það tengt tungumálinu? Eða er það vegna pólitísks þrýstings og áróðurs í þessum löndum? Í Bandaríkjunum eru til dæmis 91 stofnanir sem eru vel fjármagnaðar af yfir $900 milljón sem eru í afneitum, eða vinna gegn þeirri skoðun á hlýnun sé af manna völdum. Þessar stofnanir eru styrktar af olíufélögum og álíka fyrirtækjum. Í þessu löndum er ný-frjálshyggja nú mjög ríkjandi, þar sem margir hallast að þeiri skoðun að hinn frjálsi markaður eigi að ríkja en að draga þurfi úr áhrifum hins opinbera. Einnig er bent á, að fjölmiðlar í þessum þremur löndum séu að miklu leyti í höndum eins einstaklings: Roberts Murdoch. Hann er þekktur fyrir þá skoðun að hlýnun sé á engan hátt tengd starfsemi mannkyns. En þessar skýringar eru reyndar eins og að klóra í bakkann: enginn veit hversvegna hinn enskumælandi heimur hagar sér þannig.
Gegnumlýsing eldfjalla
25.7.2014 | 06:21
Það hefur reynst erfitt að átta sig á virkum eldfjöllum, meðal annars vegna þess, að við höfum takmarkaðar upplýsingar um innri gerð þeirra. Nú er að gerast framför á þessu sviði, vegna þess að jarðskjálftafræðingar eru farnir að gegnumlýsa eldfjöllin með jarðskjálfatbylgjum. Gott dæmi um það eru rannsóknir á Mount St Helens eldfjalli í Bandaríkjunum. Þar varð frægt sprengigos hinn 18. maí árið 1980 og síðan hafa ýmsar rannsóknir farið fram á því fjalli. Gregory Waite og félagar settu upp fyrir nokkru nítján jarðskjálftamæla umhvefis og ofaná eldfjallið. Þeir könnuðu mikinn fjölda af jarðskjálftabylgjum, sem fóru í gegnum fjallið og jarðskorpuna undir. Með því móti gátu þeir greint svæði, þar sem bylgjurnar fara hægar í gegnum jarðlögin. Þau svæði eru talin vera kvikuhólf eða svæði þar sem kvika er ríkjandi en ekki fast berg. Beint undir eldfjallinu er svæði í jarðskorpunni, á 2 til 3,5 km dýpi, þar sem jarðskjálftabylgjur fara treglega í gegnum eða hægja á sér. Þetta virðist vera kvikuþró eldfjallsins. Þar undir er annað svæði á um 5,5 til 8 km dýpi, sem einnig getur verið kvikuþró. Myndin sýnir þversnið af eldfjallinu og greinir svæðin, sem eru sennilega kvikuhólf. Á bleiku svæðunum fara skjálftabylgjur hægar, en á grænu og bláu svæðunum fara bylgjurnar með meiri hraða. En þessi könnun nær aðeins niður á um 10 km dýpi í jarðskorpunni. Nú er annar hópur vísindamanna að undirbúa gegnumlýsingu á Mount St Helens, sem mun ná niður á um 80 km dýpi og rannsaka dýpri pípulagnirnar fyrir kvikuna. Þeir munu nota bæði bylgjur, sem koma frá fjarlægum jarðskjálftum og bylgjur frá dynamít sprengingum á yfirborði til að gegnumlýsa St Helens með 3500 jarðskjálftamælum. Viðbíðum spennt eftir niðurstöðunum.
Flug M17: Af hverju Evrópa gerir ekki neitt
24.7.2014 | 06:20
Nú er talið sannað að farþegaþotan Malaysian flug 17 hafi verið skotin niður með rússneskri eldflaug sem rússneskir aðskilnaðasinnar í Úkraníu sendu á loft. Lík 193 fórnarlamba eru nú loks komin til Hollands. Reiðin er mikil í Hollandi og Evrópu allri, enda er ekki farið með líkamsleifar af þeirri virðingu sem talin er nauðsynleg í siðuðu þjóðfélagi. En allt bendir til að Evrópa geri ekkert í málinu annað en nokkrar harðar orðsendingar til Putins. Ástæðan fyrir aðgerðarleysi er sú, að rússar hafa efnahagslegt tangarhald á Evrópu, jafnvel á Þýskalandi. Tökum Holland sem dæmi um efnahagstengslin við rússa. Holland er háð rússum hvað varðar olíu og jarðgas. Hollenska olíufélagið Shell hefur gert miklar fjárfestingar í gas og olíulindum í Síberíu. Shell er stærsta fyrirtækið í Hollandi og flestir lífeyrissjóðir þar í landi hafa keypt í Shell. Ef Shell tapar, þá lækka eftirlaun allra kennara og iðnaðarmanna í Hollandi. Tengslin milli Shell og hollenska ríkisins eru mikil og flókin. Shell mun gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir þvinganir eða hömlur á verslun og viðskipti við rússa.
Árið 2012 fluttu hollendingar inn vörur frá Rússlandi fyrir $27.3 milljarða, mest jarðgas. Síðan seldu þeir 95% af þessu gasi til annara Evrópuríkja. Rússland flutti inn $9.7 milljarða það ár af vörum frá Hollandi: mest blóm, matvöru og skrifstofuvörur. Putin getur að sjáfsögðu lokað á strauminn af þungum vopnum og fjármagni til byltingasinna í Úkraníu. En Pútin er harður nagli. Hann er afkvæmi KGB, leyniþjónustu Sovíetríkjanna. Evrópa þorir ekki að gera neitt á meðan meginlandið er algjörlega háð Rússlandi hvað varðar olíu og gas.
Ég þrái Elizabetu
23.7.2014 | 07:35
Þrátt fyrir alt, þá er enn til vonarneisti um lýðræði í Bandaríkjunum. Það sem gerist í þessu stórveldi stórveldanna hefur auðvitað bein eða óbein áhrif á okkur öll. Vonin virtist bjartari þegar Obama var kosinn forseti. Hann gat þó varla verið verri en Bush! Svartur maður, vel menntaður, sem hlaut að vera lýðræðissinnaður og maður fólksins, ekki satt? Ég kaus hann, en því miður hefur hann reynst vera tól í höndum auðjöfra og Wall Street. Næstu kosningar verða haldnar árið 2016. Talið er líklegt að Hillary Clinton fari í framboð fyrir hönd Demókrata, en hún hefur ekki gefið kost á sér formlega. Ég mun vinna gegn henni. Hún er búin að vera of lengi í pólitík og orðin gjörspillt. Nú fær hún $200 þúsund fyrir hvern fyrirlestur sem hún flytur. Hún kom dóttur sinni Chelsea í stöðu, þar sem hún fær greitt $600 þúsund á ári fyrir að gera ekki neitt. Clinton fjölskyldan er heltekin græðgi (nú metin á $25 milljónir) og verður að afskrifast í stjórnmálum. Eina vonin hjá mér er nú hún Elizabeth Warren. Hún er 65 ára og starfar sem lagaprófessor við Harvard háskóla í Boston og nú þingmaður í Washington. Hún hefur lengi unnið við rannsóknir á því hvernig stjórnmálamenn og bankar hafa hagrætt lögum í landinu sér í hag og gefið út fræðirit og bækur um það mál. Hún segir þetta um auðvaldið: Þeir hafa svindlað á amerískum fjölskyldum, valdið efnahagshruni, látið svo ríkið bjarga sér á kostnað almennings, og nú eru stóru bankarnir orðnir enn stærri en þeir voru þegar hrunið varð 2008. Strákur er tekinn fastur og settur í steininn fyrir að vera með einn vindling af marijúana, en stóru bankarnir þvo peninga fyrir stóru eiturlyfjasalana og enginn þeirra er settur inn. Spilið em við lifum í er eintómt svindl! Bankastjórinn borgar minna í tekjuskatt en einkaritarinn. Hvernig er það hægt? Það er hægt vegna þess að þeir eiga lobbyista og Repúblikana fulltrúa á þinginu. Fylgist með þessari konu. Hún er eina vonin.
Júní hiti nýtt heimsmet
22.7.2014 | 08:10
NOAA, haf og loftslagsstofnun Bandaríkjanna, hefur gefið út niðurstöður á hnattrænum hitamælingurm á landi og sjó fyrir júní mánuð. Meðalhiti mánaðarins á landi og sjávaryfirborði er sá hæsti sem mælst hefur á jörðu fyrir júní mánuð, eða 0,72 gráðum hærri en meðaltal fyrir alla tuttugustu öldina (15.5°C). Á landsvæðum er meðalhitinn fyrir júní 0,95 gráðum hærra en tuttugustu aldar meðaltalið. Á hafinu er júní meðalhitinn 0,64 gráðum hærri en tuttugustu aldar meðaltalið. Grænland var sérstaklega heitt í júní. Til dæmis fór hiti í Kangerlussuaq á suðvestur Grænlandi í 23,2 gráður hinn 15. júní, sem er nýtt met. Hér í Stykkishólmi er þetta einnig hlýasti júní síðan mælingar hófust árið 1845.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vogunarsjóðurinn Elliott og Eyjafjallajökull
21.7.2014 | 07:35
Strax og eldgosið í Eyjafjallajökli hófst fékk ég símtöl frá fyrirtæki í New York sem heitir Elliott Management Corporation. Þeir vildu fá reglulegar skýrslur frá mér varðandi hegðun gossins og spá um líkur á framvindu mála í Eyjafjallajökli. Ég kom alveg af fjöllum varðandi þetta fyrirtæki og átti erfitt með að átta mig á hvað væri í gangi. Áhugamál mín eru vísindin og fróðleikur en ekki viðskiptaheimurinn og ég hafði enga hugmynd um hvers vegna þeir sóttust eftir þessum upplýsingum. Það er nú loks fjórum árum síðar að ég átta mig á hvað var að gerast. Elliott er einn stærsti vogunarsjóðurinn eða hedge fund á jörðu (númer 10, með $19 milljarða). Þetta er einnig sá vogunarsjóður, sem hefur eignast flestar kröfur á fallna íslenska banka. Kjarninn hefur nýlega fjallað um Elliott og gefið honum nafnið hrægammasjóður. Kjarninn telur að Elliott sé á bakvið eða jafnvel eigandi af kröfum á stóru þrotabú föllnu íslensku bankanna Glitnis, Kaupþings og Landsbankans. Auðvitað var það í þeirra hag að fræðast um framvindu mála varðandi náttúruhamfarir á Íslandi á meðan á gosinu stóð.
Olíuleit í Atlantshafi hefst aftur
20.7.2014 | 07:35
Á föstudag tilkynnti Bandaríkjastjórn að hún mun nú á ný veita leyfi til olíuleitar í Atlantshafi. Reyndar verður leyfi aðeins veitt til jarðeðlisfræðilegra rannsókna á hafsbotninum, en ekki borunnar fyrst um sinn. Þessar rannsóknir fela í sér olíuleit, þar sem tíðar sprengingar eru gerðar í hafinu. Við það kastast hljóðbylgjan niður í hafsbotninn og sendir til baka upplýsingar um gerð og lögun setlaga undir hafsbotninum. Fysta mynd sýnir slíkar mælingar, sem eru gerðar frá skipshlið. Höggbylgjurnar gegnumlýsa hafsbotninn og gera sneiðmynd líkt og þeim sem eru gerðar á sjúkrahúsum.
Dæmi um slíka sneiðmynd af hafsbotnssetinu er á annari mynd, en með þessari aðferð er hægt að kanna setið niður á nokkra kílómetra dýpi. Slíkar mælingar eru nauðsynlegar til að fara á næsta stig við olíuleit: borun. Sprengingar af þessu tagi hafa verið bannaðar í nokkur ár vegna þess að þær eru skaðlegar lífríki í hafinu, einkum hvölum. Það er fullsannað að spendýr eins og hvalir þola ekki höggið frá sprengingunum, sem gerast á nokkra sekúndna fresti. Höggbylgjan getur sprengt hljóðhimnu í eyrum spendýra og valdið öðrum meinum. En Obama hefur brotið hér blað og fer ámóti umhverfisverndarsinnum í Bandaríkjunum með þessari ákvörðun. Svæðin eru undan austur strönd Bandaríkjanna, í Mexíkóflóa og í hafinu norðan Alaska, eins og myndin sýnir.
Það má svo búast við að leyfi til borana á botni Atlantshafsins verði síðan veitt í kringum 2020. Á þessu svæði er mjög þykk og gömul setmyndun, sem nær alla leið aftur til tímabils fyrir um 180 milljón árum síðan. Þá byrjaði Norður Ameríka að klofna frá vestur Afríku og Evrópu og Atlantshaf byrjar að myndast.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 07:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kalda stríðið
19.7.2014 | 13:17


Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru háloftavindar að breytast?
19.7.2014 | 07:21
Það er vel afmarkaður vindstraumur í andrúmsloftinu yfir jörðu, sem nefnist háloftavindur (Polar jet stream). Hann er vestanátt, þ.e.a.s. hann blæst oftast frá vestri til austurs, og er í um 10 til 15 km hæð. Vindhraðinn getur verið gífurlegur hér, eða meir en 160 km á klst. og flugmenn í millilandaflugi notfæra sér oft þennan straum til að flýta ferðinni. Reyndar eru háloftavindarnir tveir á norðurhveli. Háloftavindurinn finnst á öðrum plánteum sólkerfisins. Hér er til dæmis mynd af norðurpólnum á Satúrn, en háloftavindurinn hér er sexhyrndur. Háloftavindurinn á jörðu verður til vegna þess að það er mikill munur á hita á heimskautssvæðinu og hita umhverfis miðbaug. Því meiri sem hitamunurinn er, því hraðar blæs vindurinn. Loftslagsfræðingar hafa lengi haldið því fram, að ef loftslag hlýnar, þá kunni að draga úr hraða háloftavindanna. Háloftavindurinn hefur undanfarið verið mjög bugðóttur. Hann tekur á stundum ótrúlega stóra hlykki á ferð sinni, eins og önnur mynd sýnir.
Þar er mesti vindhraðinn sýndur með rauðum línum. Það eru þessir hlykkir, sem vekja nú mikla athygli. Á annan bóginn getur hlykkur flutt mikinn hita langt norður í átt að pólnum, en hins vegar getur hlykkur eða bugða flutt mikinn kulda langt suður í lönd. Allir straumar geta verið bugðóttir, eins og straumvötn eiga líka til, en yfirleitt er talið að bugður vaxi þegar dregur úr straumhraða. Tökum til dæmis straumvatn á yfirborði jarðar. Þegar áin rennur hratt og í miklum halla, þá myndar hún sér oftast fremur beinan farveg. Hinsvegar, þegar dregur úr hallanum þá dregur einnig úr hraða straumsins og þá byrjar áin að verða bugðótt. Nú telja sumir loftslagsfræðingar að háloftavindurinn sé að verða bugðóttari vegna þess að hann sé að hægja á sér. En er hann að hægja á sér vegna þess að það er minni munur á hita fyrir norðan og sunnan vindinn? Er hann þá að hægja á sér vegna hnattrænnar hlýnunar? Eftir þennan langa inngang vil ég komast að aðal efninu. Það er ljóst að norðurheimskautið hlýnar hraðar en önnur landsvæði og að hafís í norðri minnkar hratt. Sumir hafa stungið uppá því að þessi hraða bráðnun sé vegna þess að miklar bugður í háloftavindum flytja hita til norðurs. Ef þetta er rétt, þá eigum við í vændum vaxandi sveiflur í hitafari á norðurslóðum.
SILICOR þýðir meiri mengun á Grundartanga
18.7.2014 | 05:52
Við lesum í fréttum að amerískt fyrirtæki hyggst reisa verksmiðju á Grundartanga til að framleiða sólarsellur. Sólarsellur eru að sjálfsögðu ágæt aðferð til að beisla endurnýjanlega orku, en það fylgir mikill böggull skammrifi. Framleiðsla á sólarsellum og efninu polysilicon er mjög sóðalegt og mengandi verk og fylgir því mikil losun af eiturefninu sílikon tetraklóríð - SiCl4. Það er talið að við framleiðslu af einu tonni af polysílikon verði til úrgangur sem er fjögur tonn af sílikon tetraklóríð. En það eru fleiri hliðar á þessu máli, sem nauðsynlegt er að athuga náið. Þar á meðal er saga og ferill fyrirtækisins Silicor. Það þarf gífurlega raforku til að framleiða sólarsellur. Kísilsandur er innfluttur og bræddur við mjög háan hita, allt að 2000 oC og við það er reynt að losna við mest af súrefninu sem er bundið í sandinn, en eftir er tiltölulega hreint sílikon. Slíkar versmiðjur eru því reistar þar sem ódýr orka er fyrir hendi eins og væntanlega á Íslandi.
Síðan er vökvinn sílikon tetraklóríð notað í miklu magni til að gera sílikon enn hreinna. Framleiðsla á polysílikon er talin svo mengandi að Bandaríkin vilja helst ekki leyfa slíkan iðnað þar í landi og hafa hingað til látið Kínverja um sóðaskapinn heima hjá sér. Nú er röðin komin að Íslandi. Silicor vill svína landið okkar út og kaupa hér ódýra orku. Hvar ætla þeir að loasa sig við allt þetta magn af eiturefninu sílikon tetraklóríð? Hvað um klór gasið sem berst út í andrúmsloftið? Er ef til vill búið að afskrifa Hvalfjörð og Akranes, og dæma þetta svæði sem iðnaðarhverfi, þar sem mengun er leyfileg? Silicor hét áður Calisolar og breytti um nafn til að fela sinn fyrri feril í viðskiptaheiminum vestra. Calisolar rak um tíma verksmiðju í Toronto, Kanada. Það fóru ljótar sögur af þeim rekstri, eins og sagt er frá í dagblaðinu Columbus Dispatch. Fyrirtækið var í Kaliforníu en reyndi svo fyrir sér fyrst í Ohio fylki og síðar í Mississippi og leitaði þar fyrir sér með lán til að reisa verksmiðju. Þeir urðu að hverfa frá Mississippi vegna þess að fyrirtækið gat ekki einu sinni lagt fram $150,000 sem stofnfé. Nú er forstjórum Silicor fagnað af fyrirmönnum Faxaflóahafna og þeir í Silicor ræða við Arion banka um lán til að reisa verksmiðju hér. Hvað viljum við leggjast lágt til að fá iðnað inn í landið?