Bloggfærslur mánaðarins, september 2017
Það kemur út úr báðum endum á kúnum
30.9.2017 | 11:07
Metan, jarðgas mýragas CH4 er annað mikilvægata gasið, sem hefur áhrif á loftslag, myndar gróðurhúsaáhrifin og veldur hnattrænni hlýnun. Talið er að hver sameind af metan sé um 30 sinnum virkari en koltvíoxíð, eins og ég hef bent á aður hér
http://vulkan.blog.is/blog/vulkan/entry/2187409/
Metan hefur vaxið stöðugt í andrúmsloftinu, eins og myndin sýnir. Þegar þið skoðið myndina nánar, takið þá eftir að frá 1984 til 2006 virtist vera að hægja á metan losun í heiminum, en svo byrjar annað tímabil, sem ríkir enn, þar sem metan losun vex í aukandi mæli. Sumir hafa kennt þar um vaxandi borun eftir jarðgasi, en aðrir benda á landbúnað. Nú virðist niðurstaðan vera sú, að þessi voxtur sé mest nautgripum að kenna, samkvæmt nýbirtum niðurstöðum Julie Wolf og félaga. Metan gas er bein afleiðing af meltingu hjá grasætum eins og kúm og þær losa sig við gasið reglulega úr báðum endum. Nautgripastofninn hefur stækkað mikið, bæði hvað snertir heildar fjölda og ekki síður stærð einstaklingsins, vegna kynbóta. Einnig hefur meðferð og nýting mykjuáburðar aukist mikið og allt þetta skýrir meiri útlosun af metan gasi á jörðu. Það sem mér finnst merkilegast er, hvað kerfið er viðkvæmt og hvað tiltölulega litlar breytingar á háttum okkar geta haft áhrif á heimsvísu.
Harmleikurinn í Norður Kóreu
26.9.2017 | 08:53
Þegar við fylgjumst með fáránlegum samskiftum Trumps og Kim Jong-il, þá gleymum við því oft að það er venjulegt fólk sem býr í Norður Kóreu og þessi almenningur ber miklar þjáningar. Samanburðurinn á milli þjóðanna í dag gefur merkilega innsýn í áhrif tveggja mismunandi stjórnkerfa. Landinu var skipt í tvennt árið 1948 og síðan hafa tvær þjóðir þróast hver á sinn hátt, undir einræðisstjórn annars vegar og lýðveldi hins vegar. Áhrifin á efnahag hafa verið sláandi. Línuritið sýnir verga þjóðarframleiðslu í löndunum tveimur, í US$. Þróunin var svipuð allt til 1973 en síðan hefur hagur í Norður Kóreu staðið í stað eða versnað. Þeir í suðri hafa á mean byggt upp þjóð, sem er einn af stærstu útflytjendum á iðnaðar- og tæknivörum á jörðu. Á meðan Suður Kórea flytur út Samsung and Hyundai, þá eru kol nær eina útflutningsvara Norður Kóreu. En það er annað sem hefur mikil áhrif á afkomu í Norður Kóreu: hervæðing. Þótt Norður Kórea sé númer 52 í heiminum hvað snertir fólksfjölda, þá eru þeir númer fjögur í heiminum hvað varðar stærð hersins. Um fjórðungur af allri vergri þjóðarframleiðslu fer í herbúnað, og nær hver einasti maður hefur hlotið einhverja herþjálfun.
Agung á nippinu
24.9.2017 | 17:49
Fjöldi skjalfta undir eldfjallinu Agung á Balí hefur aukist verulega, eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Núer búist við gosi á hverri stundu, en byrjað er að rjúka úr gígnum, sem er hæsti topur eyjarinnar Bali. Agung gýs andesít kviku, sem er millistig milli basalts og líparíts, með um 55% kísil. Þessi kvika er mjög seig, eða meir en tíu sinnum seigari en basaltkvikan sem gýs á Íslandi. Einnig innheldur andesítkvika meira vatn. Af þeim sökum eru gosin oft sprengigos í upphafi, þegar gasríkasta kvikan kemur upp, en breytast síðan í gos sem hlaða upp seigum og háum hraungúl yfir gígnum. Öðru hvoru falla stórar spildur úr hlíðum gúlsins og mynda heitar gloandi skriður af vikri, ösku og heitu grjóti niður hliðarnar. Stórhættulegt ástand!
Agung á Balí er að ókyrrast
22.9.2017 | 17:02
Agung eldfjall austast á eynni Balí í Indónesíu gaus miklu gosi árið 1963. Þá fórust meir en eitt þúsund manns í flóðum og gjóskuflóðum. Í dag berast þær fréttir að mikil skjálftavirkni hefur hafist undir fjallinu (676 skjálftar) og allar líkur eru á að gos sé í aðsigi. Stór svæði á eynni hafa verið rýmd, en Agung er eitt mesta aðdráttarafl túrista á þessum slóðum. Um fimmtíu þúsund manns búa á hættusvæðinu. Sprengigosið árið 1963 var stórgos, og aska og gas frá því gosi barst víða í háloftum og kann að hafa haft loftslagsáhrif (kólnun). Ég vona að vinur minn Rik Stoedman og fjölskulda i þorpinu Ubud séu ekki í hættu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mögnun jarskjálftans í Mexíkó
22.9.2017 | 11:11
Jarðskjálftinn sem skók Mexíkóborg var slæmur, og yfir 270 hafa látist. Skjálftinn var meðalstór, um 7,1, en í um 85 km fjarlægð. Ástæðan fyri miklu tjóni á mönnum og byggingum var samt ekki einfaldlega vegna stærðar skjálftans, heldur vegna ástæðna jarðlaga undir borginni. Þegar Spánverjar komu árið 1521 hét borgin Tenochtitlan, höfuðborg Axtecaþjóðarinnar. En Tenochtitlan var staðsett á eyjum og umhverfis stórt stöðuvatn; Texcoco. Eftir komu Spánverja var hafist handa við að ræsa fram og fylla upp í vatnið. Nú stendur því borgin að miklu leyti á allt að 100 m þykku leirkenndu vatnsseti og lausum vatnssósa sandi. Þegar jarðskjálftabylgjur berast í setið undir borginni, þá hægja þær á sér frá um 2 km á sekúndu, niður í um 50 m á sek. Um leið magnast og hækka bylgjurnar (amplitude) og valda meiri skaða. Myndin sýnir útlínur gamla stöðuvatnsins og svæðið þar sem mögnunin á skjálftum gerist. Mögnunin nemur um hundrað sinnum. Staðsetning borgarinnar getur því varla verið verri, og mun alltaf vald vandamálum.
Er gullgrafaraæðinu að ljúka?
19.9.2017 | 10:38
Það hófst árið 1966, er íslenska ríkið samdi við svissneska fyrirtækið Alusuisse um lýgilega ódýrt orkuverð til álbræðsluvers í Straumsvík. Þar með var alheim gert kunnugt að á Íslandi væri hægt að semja við ríkisstjórn um hræódýra orku og að það væri ríkisstjórn sem hefði engar áhyggjur af mengun og náttúruspjöllum, allt í þágu stóriðjustefnu. Í kjölfarið fylgdu álver Fjarðaál í Reyðarfirði og Norðurál á Grundartanga, en í heild taka álverin um 75% af allri orkuframleiðslu á Íslandi. Græðgin í ódýra orku var svo mikil, að orkuframleiðsla Íslands tvöfaldaðist á aðeins fimm árum, frá 2002 til 2007. En á meðan fóru öll viðskiptin við álframleiðendur fram á leyndu orkuverði, sem ríkistjórnin ein veit um.
Nú berast okkur fregnir að áform um enn eitt stóriðjuver séu að renna út í sandinn: það er fyrirhuguð sólarkísilverksmiðja Silicor Materials á Grundartanga. Á sama tíma er búið að loka kísilveri United Silicon í Helguvík vegna stórfelldar mengunar. Íslendingar eru loksins að átta sig á að hemjulaus stóriðja er ekki endilega rétta lausnin til velferðar. Það eru ýmsar aðrar og ómengandi leiðir til efnahagslegrar þróunar, eins og ferðaiðnaðurinn hefur bent sterkelga á. Vonandi erum við nú að hætta þessu gullgrafaraæði sem hófst í Straumsvík, enda tími til kominn.
Svona eiga bændur að vera
16.9.2017 | 20:58
Uppáhaldsmynd mín af íslenskum bónda er þessi hér af Markúsi Loftssyni (1828 1906). Góðmennskan og gáfurnar skína út úr andlitinu, sem skeggkraginn rammar svo lisitlega inn. Hatturinn er svo kórónan á allt saman. Skeggkragi af þessari gerð ber nafnið chin curtain á ensku máli og gerði sjálfur Abraham Lincoln þennan stíl heimsfrægan. Lincoln lét sér skeggkraga vaxa eftir að ellefu ára stúlka skrifaði honum bréf árið 1860, þar sem hún benti honum á að hann fengi fleiri atkvæði ef honum tækist að fela sinaberan hálsinn og kinnfiskasogna vánga með skeggi. Það reyndist rétt.
En nóg með þennan útúrdúr með skeggið. Snúum okkur að manninum Magnúsi. Hann var lengst af bóndi á Hjörleifshöfða, í skotlinu frá eldstöðinni Kötlu. Þessi staður á Suðurlandi er eiginlega eldfjallseyja að uppruna, eins og eyjar Vestmannaeyja, en Hjörleifshöfði tengdist meginlandinu fyrir tiltölulega stuttum tíma, vegna mikils framburðar gosefna, ösku og sands frá eldgosum í Kötlu undir Mýrdalsjökli.
Markús var fyrst og fremst bóndi, en var einnig sérmenntaður fræðimaður, sem hafði mikinn áhuga á jarðfræðum. Hann er einn af einstökum persónum í bændasamfélagi Íslands á nitjándu og tuttugustu öld, sem fylgdust með náttúruhamförum, skráðu niður lýsingar af eldgosum og gerðu mælingar. Má þar með telja auk Markúsar þá Kvískerjabræður, Jakob Líndal á Lækjamóti og Einar H. Einarsson á Skammadalshóli. Þeir birtu einnig niðurstöður sínar í tímaritinu Náttúrufræðingnum.
Árið 1880 birtist á prent merkileg bók eftir Markús: Rit um Jarðelda á Íslandi. Bókin kom aftur út árið 1930, aukin og endurbætt af Skúla, syni Markúsar. Markús tekur saman ýmsar sögulegar heimildir um eldgos á Íslandi, en auðvitað er mikil áhersla lögð á Kötlu í ritinu, enda var hún staðsett rétt við túnfótinn.
Maðurinn sem mældi aldur Íslands
15.9.2017 | 14:22
Vinur minn Stephen Moorbath er látinn. Ég kynntist Stephen þegar ég var við doktorsnám í Bretlandi og það leiddi til þess að við gerðum út leiðangur til Íslands til að ákvarða hvað íslenska blágrýtismyndunin væri gömul. Stephen rak merkilega rannsóknastofu við Oxfordháskóla, þar sem aðstæður voru frábærar til að mæla aldur bergs með því að ákvarða magn geislavirkra efna í berginu. Hann hafði hlotið heimsfrægð vegna aldursgreininga hans á elsta bergi Grænlands, sem er nærri fjórir miljarðar ára að aldri, og var langi vel talið elsta berg á jörðu (nú finnst enn eldra berg í Kanada).
Þegar við Stephen byrjuðum verkefnið á Íslandi, þá var augljóst að elstu hraunlögin í blágrýtisstaflanum væri að hitta fyrir austast og vestast á landinu, ef dæma má út frá legu og halla jarðlaganna. Við stefndum því á Vestfirði sumarið 1967 og tókum mörg sýnishorn af blágrýti einkum á Breiðdalsheiði, en þar reyndist bergið mjög ferskt og ekki ummyndað af jarðhita. Þá var næst stefnt á Austfirðina og þar fylgdum við jarðlögunum þar til við vorum komnir neðst í staflann við Gerpi á Austfjörðum. Auk þess tókum við sýni úr klettum bak við naglaverksmiðjuna í Borgarnesi, en jarðlagahallinn benti til að þar ætti að vera tiltölulega fornt berg (Borganes andhverfan). Ári síðar birtust niðurstöður okkar í vísindaritinu Earth and Planetary Science Letters. Það kom í ljós að elsta bergið á Vestfjörðum ern nokkurn veginn jafn gamalt og á Austfjörðum, eða um 16 milljón ára, og að beglögin yngjast inn til landsins í báðar áttir. Andhverfan í Borgarnesi reyndist vera um 12.5 milljón ára. Þetta voru spennandi tímar, því grundvöllur þekkingar okkar á uppbyggingu Íslands var að fæast, einkum með tilliti til Mið-Atlantshafshryggjarins.
Stephen Moorbath var tvímælalaust í fremstu röð jarðvísindamanna í Bretlandi. Hann starfaði í mörg ár við rannsóknir á geislavirkum efnum í jörðu og þróaði tækni til að kanna og mæla þau. En hann var fæddur í gyðingafjölskyldu í Þýskalandi árið 1929. Hann slapp naumlega frá Þýskalandi nasista árið 1939, en móðir hans og systir voru brenndar í helförinni miklu í herbúðum nasista árið 1942. Hann fékk vinnu sem aðstoðarmaður í lífefnafræðideild Oxfordháskóla sem unglingur, en einstakir hæfileikar hans komu fljótt í ljós og kjarnorkustofnunin Harwell sendi hann beint á skólabekk í Oxford til framhaldsnáms árið 1948. Ferill hans sem vísindamanns var glæsilegur, en það voru margar aðrar merkilegar hliðar á þessum gáfaða sérvitring: tónlist, listir, bókmenntir og allt hitt var á hans valdi, en kímnigáfan meiri og betri en hjá nokkrum öðrum sem ég hef kynnst.
Hlýnun heimshafanna lýgur ekki
15.9.2017 | 10:32
Oftast er fjallað um breytingar á hita andrúmsloftsins þegar rætt er um loftslagsbreytingar. Við skulum nú líta á hnattræna hlýnun frá allt öðru sjónarhorni: hita hafsins. Við þekkjum það vel frá reynslu okkar úr eldhúsinu að lofthiti er reikull, en hiti vatnsins er mikill og langvarandi forðabúr af orku. Við leggjum því hitafarssögu andrúmsloftsins til hliðar að sinni og skoðum sögu og feril hita heimshafanna undanfarna áratugi, eða frá 1958. Það er með hita, eins og margt annað, að segja má að lengi tekur sjórinn við. En það er flókið mál að mæla og fylgjast með hita hafsins, því hann er mjög breytilegur eftir bæði staðsetningu á plánetunni og einnig dýpi í hafinu. En síðan 2006 hefur verið mjög vel fylgst með hita hafsins með svokölluðum ARGO duflum, dreift víða um heimshöfin, sem mæla hita hafsins frá yfirborði og niður á 2 km dýpi.
Myndin sem fylgir sýnir tvennt: hún sýnir hitann sem felst í efstu 2 km í hafinu, í orkueiningunni Joules (svarta línan) og einnig magn koltvíoxíðs í andrúmsloftinu. Það er ljóst að hitamagn hafsins er stöugt að aukast. Til samanburðar má benda á að hitun heimshafanna frá yfirborði og niður á 2 km dýpi frá 1992 til þessa árs er um tvö þúsund meiri hitaorka en öll orkan framleidd af öllum raforkuverum Bandaríkjanna síðasta áratuginn. Blá-græna línan er ferill koltvíoxíðs í andrúmslofti jarðar, sem stöðugt vex af manna völdum. Myndin er frá Lijing Cheng.
Fellibylirnir eru að byrja að breyta hugarfarinu um lofslagsbreytinar
14.9.2017 | 12:15
Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, þá hafa hægri menn í Bandaríkjunum og víðar hina mestu óbeit á hugtakinu loftslagsbreytingar. Þeir virðast líta svo á, að kenningin um loftslagagsbreytingar sé uppspuni, sem vinstri menn og sósíalistar beiti í pólitískum tilgangi, til að hreðja á frjálslyndistefnu auðvaldsins. Þeir líta á kenninguna um loftslagsbreytingar sem verkfæri vinstrisinnaðra til að hnekkja á olíufélögum, kolanámum, og arðbærri starfssemi þeirra. Þeir neita að trúa því sem frjálslyndir segja, þeir neita að trúa vísindamönnum, en nú verða þeir að trúa sínum eigin augum. En nú er komið aðeins annað hljóð í strokkinn, eftir að bæði tíðni og styrkur fellibylja í hefur færst í aukana, einkum í suður ríkjum Bandaríkjanna. Það mun væntanlega koma í ljós í þingkosningunum árið 2018 hvort veruleg breyting hefur orðið á viðhorfinu til loftslagsmála í Norður Ameríku. En skoðun almennings er að breytast smátt og smátt, eins og nýjasta könnun Gallups sýnir fram á. Myndin sýnir niðurstöður skoðanakannana Gallups frá 2001 til 2017. Það er greinilegt að hugarfarið er að breytast, þótt hægt gangi.