Bloggfærslur mánaðarins, október 2020
Eldfjallasafn í Stykkishólmi er til sölu
31.10.2020 | 19:20
Á ferðum sínum h
efur Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur komið sér upp miklu safni af efni, ýmiskonar listaverkum, rannsóknarefni og bókum sem snerta eldgos og eldvirkni víðsvegar um heim. Safnið hefur verið til húsa í Stykkishólmi í rúman áratug, en er nú til sölu.
Í safni Haraldar eru mörg hundruð listaverka. Þar má nefna málverk, málmstungur og svartlist ýmiskonar frá eldvirkni um allan heim. Einnig er þar að finna frumstæða list (alþýðulist) frá Indónesíu, Mexíkó, Mið-Ameríku og víðar. Úrval er af japanskri "goslist", einnig listmunir og safn minjagripa. Í safninu má m.a. finna stórt verk eftir Andy Warhol frá 1985 af eldgosi, myndir eftir Japanann Katsushika Hokusai, Mexíkanana David Alfaro Siqueiros og Dr. Atl, auk merkilegs safns af prentverki og plakötum af bíómyndum sem fjalla um eldgos. Einnig er hér að finna merkt steinasafn, sem er miðað við uppfræðslu um jarðfræði Íslands. Í Eldfjallasafni er einnig vandað safn bóka um eldgos og eldfjallafræði auk rúmlega 6000 sérprentana með vísindagreinum og safn jarðfræðikorta. Loks má nefna safn kvikmynda af eldgosum og efnis á myndböndum.
Frekari upplýsingar má fá í síma 899 0857 og tölvupósti hsigurdsson@uri.edu.


stjornuskodun
loftslag
omarbjarki
emilhannes
agbjarn
postdoc
nimbus
hoskibui
turdus
apalsson
svatli
greindur
askja
juliusvalsson
redlion
kamasutra
vey
blossom
aslaugas
agny
annaeinars
hekla
brandurj
gisgis
einarorneinars
fornleifur
gessi
helgigunnars
himmalingur
kolgrimur
keli
brenninetla
jokapje
thjodarskutan
photo
kollakvaran
hringurinn
kristjan9
maggadora
marinomm
nhelgason
hross
duddi9
sigurfang
summi
villagunn










