![Cordon Caulle Cordon Caulle](/tn/250/users/b9/vulkan/img/cordoncaulle.jpg)
Í öllum þeim óróa sem ríkt hefur í jarðskorpunni hér á landi í ár, þá hafa margir sjálfsagt ekki tekið eftir merkum atburði á suðurhveli jarðar.
Það er eldgosið í fjallinu Puyehue-Cordon Caulle í Síle, sem hefur nú hvað eftir annað stöðvað flugumferð í nokkrum löndum Suður Ameríku, Suður Afríku, Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Jarðskjálftavirkni jókst undir Puyehue-Cordon Caulle í lok apríl 2011 og í byrjun júni var virknin komin í um 60 skjálfta á klukkutíma. Hinn 3. júní árið 2011 voru 230 skjálftar á klukkutíma, og 4. júní hófst sprengigos í Cordon Caulle gígnum.
Fyrsta myndin sýnir gjóskustrókinn upp af eldfjallinu.
![Umhvefis hnöttinn Umhvefis hnöttinn](/tn/250/users/b9/vulkan/img/silegos.jpg)
Gjóskustrókurinn fór strax í yfir 12 km hæð og gjóskuflóð streymdu yfir nágrennið. Næsta dag hafði gjóskumökkurinn borist til austurs yfir Argentínu og út á Atlantshaf.
Eldfjallið er staðsett á um 40,5 gráðu suðlægrar breiddar, og fylgdi askan nokkurn veginn þessari breiddargráðu umhverfis hnöttinn. Þá barst askan yfir suður odda Suður Afríku, og síðan áfram austur yfir Ástralíu í um 6 til 13 km hæð. Þar varð að loka flugvöllum í Sidney og Melbourne og flugfélögin Qantas og Virgin hættu við flug á þessa staði. Vegna lokunar á flugvöllum voru hundruðir þúsunda strandaglópar, og meir en sjö hundruð flugferðum var aflýst.
Áhrifanna gætir enn í Argentínu og í Síle, þar sem flugsamgöngur hafa verið lamaðar.
![Líkan af öskudreifingu Líkan af öskudreifingu](/tn/300/users/b9/vulkan/img/kanada.jpg)
Öskumökkurinn hefur nú borist nokkra hringi umhverfis jörðina, frá vestri til austurs, eins og önnur myndin sýnir.
Þriðja myndin er frá Veðurstofu Kanada, og sýnir dreifingu öskunnar á suður hveli jarðar. Ég vil sérstakelga benda á hreyfimynd af líkani sem Kanadamenn hafa gert, en hana má skoða hér:
http://eer.cmc.ec.gc.ca/people/Alain/eer/emergencies/fd92kH73sSJDiO76bxpJK/Cordon_Caulle/exp_05/TCC/anim.html
Gosinu er ekki lokið, og er hætt við að áhrifa þess gæti áfram á flugsamgöngur á suðurhveli jarðar um tíma.