Er bráðnun hluti af öskjusiginu?

bráðnunGPS mælirinn, sem situr á miðri íshellunni yfir Bárðarbungu sígur hægt og hægt, en alls ekki reglulega. Nú mun heildarsig vera komið niður í um 30 metra.  Einfaldasta skýringin á siginu er að botn öskjunnar sé að síga niður í kvikuþróna undir. Við það myndast stórir jarðskjálftar á hringlaga misgengi, af stærðinni 5 til 5,4.  En hægfara sig er einnig í gangi á tímum milli skjálftanna. Er það vegna þess að jarðskorpan er að jafna sig eftir skjálftann, eða er það ef til vill vegna bráðnunar jökulsins  á botni öskjunnar?  Myndin sýnir báða þessa möguleika. Í dag og undanfarna sólarhringa hefur sigið verið mun óreglulegra en áður.  Sumir segja að íshellan sé farin að hoppa upp og niður eins og ísfleki ofan á polli.  Ef slik bráðnun á sér stað, þá leitar vatnið upp milli jökuls og fjallsins, eins og myndin sýnir.  Það árf að komast upp í 1350 m hæð til að streyma yfir dýpsta skarðið í öskjunni, til norðausturs.  Öskjubotninn er í 1100 metra hæð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Haraldur, getur verið að gps mælirinn sé ekki í miðri öskjunni t.d. í norðurkantinum? Ef "tappinn" sígur mest  þar sem jarðskjálftar verða þá t.d. ef skjálfti yrði í suðurbrún öskjunnar gæti þá ekki norðurbrún "tappans" lyfst?

Gæti þetta skýrt hversvegna við erum að sjá að askjan (gps tækið) hækkar áður en hún lækkar?

Grímur Lúðvíksson (IP-tala skráð) 7.10.2014 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband