Týnda flugvélin
25.9.2012 | 17:59
Í gær komst ég loks að leifum bresku herflugvélarinnar, sem brotnaði í norður hamri Svartahnúks árið 1941. Vélarpartar og litlar tætlur af ál eru á víð og dreif í skriðunni undir hnúknum á um 100 metra breiðu svæði. Áltætlurnar er allar beyglaðar og sumar bræddar, eins og fyrsta myndin sýnir. Útlit þeirra minnir okkur rækilega á það, að sprengju- og skotfærafarmur hervélarinnar sprakk í loft upp við áreksturinn og mikið bál varð úr. Flugslysið varð hinn 28. nóvember árið 1941 og hefur Karl Smári Hreinsson skrifað ágæta grein um þennan atburð. Eftir að hafa hringsólað um norðanvert Snæfellsnes flaug vélin inn Kolgrafafjörð í afleitu veðri, en náði ekki að komast suður yfir fjallgarðinn og brotnaði í hamrinum, þar sem merkið X er á kortinu hér til hlíðar. Ég hef verið að leita að flakinu öðru hvoru í sumar, en það hefur verið hulið snjó þar til nú í september. Þessi Vickers Wellington tveggja hreyfla sprengjuflugvél hafði farið í eftirlitsflug á hafinu milli Íslands og Grænlands hinn 28. nóvember. Það var hvasst að suðaustan þennan dag og mjög láskýjað. Bændur í Kolgrafafirði og Eyrarsveit heyrðu flugvélagný og sáu mikinn blossa í fjallinu, eins og eldgos. En veðrið var afleitt og skyggni ekkert. Einn bóndi tók hvað mestan þátt í leit að flugvélinni, en það var Ingvar Agnarsson bóndi á Kolgröfum. Nokkrum árum síðar var ég part úr sumri sem ungur smali í sveit hjá Ingvari á Kolgröfum. Þá fræddist ég dálítið um atburðinn, en Ingvar hélt merka dagbók. Hinn 1. desember komst Ingvar loks að flakinu undir Svartahnúk, beint fyrir ofan Grenjadal. Leifar af sex líkum áhafnarinnanr fundust og voru þau flutt til byggða. Svartihnúkur er nær þverhníptur. Hann er myndaður úr blágrýtislögum, sem hafa ummyndast vegna háhita. Innskot af granófýr og díórít bergi eru mikilvæg í efri hluta hnúksins.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Mannfræði, Snæfellsnes | Facebook
Athugasemdir
Þetta voru fróðlegar upplýsingar fyrir okkur Snæfellinga. Menn hafa verið að skrá og finna upplýsingar um ýmislegt af þessu tagi, sem gerðist á stríðsárunum og var þaggað niður af hernaðaryfirvöldum. Á mínum gömlu heimaslóðum varð eitt svona slys þegar orrustuflugvél (held ég) flaug í Vallnahnjúk. Mér skilst að tiltölulega auðvelt hafi verið að komast að því flaki og ýmislegt dót úr vélinni mun hafa til skamms tíma verið tiltækt hjá stöku manni í Fróðárhreppi og e.t.v. víðar. - Ingvar á Kolgröfum kannaðist ég nokkuð vel við meðan ég dvaldi í Grundarfirði fyrir hálfri öld. Vel gefinn og vel gerður maður og seinnilega vanmetinn af samtíð sinni.
Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 25.9.2012 kl. 20:39
Tek undir með Þorkatli um fróðleikinn.
Hjörleifur Sigurðsson Hrísdal tók þátt í þesari leit og skrifaði söguna niður og sendi bróður sínum Sigfúsi.
Það bréf fannst eftir lát Sigfúsar og mun vera hjá Elínu Sigurðardóttur Stykkishólmi.
Kv. Ágj
Ásgeir Gunnar jónsson (IP-tala skráð) 8.10.2012 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.