Þegar Öskjuvatn myndaðist
3.4.2012 | 16:36
Öskjuvatn er yngsta caldera eða askja á Jörðu og er því mjög merkilegt fyrirbæri fyrir vísindin. Hún er lítil askja inni í stórri öskju. Við vitum dálítið um gang mála í Öskju og myndun sigdældarinnar sem nú inniheldur Öskjuvatn. Myndin sem fylgir er línurit um myndun Öskjuvatns, byggt á ýmsum kortum og teikningum ferðamanna sem Ólafur Jónsson tók saman. Myndin er úr nýútkominni bók minni Eldur Niðri (2011). Lóðrétti kvarðinn er flatarmál nýju öskjunnar, í ferkílómetrum. Á myndinni kemur fram að sigdældin myndaðist ekki í einum hvelli, heldur hefur hún myndast á nokkrum mánuðum. Sigið hefur sennilega verið að mestu búið árið 1880, eða innan fimm ára frá gosi.
Varðandi umræður um það, hvort Öskjuvatn sé að hitna, þá er vert að hafa það í hug að skjálftavirkni hefur verið fremur lítil á svæðinu enn sem komið er. En næsta blogg mitt fjallar um skjálftana.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Askja, Eldgos, Ferðalög | Breytt 4.4.2012 kl. 06:10 | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir þennan fróðleik. Myndin sem var á mbl.is var nokkuð merkileg, eins og skráargat á landinu.
Ragnheiður , 4.4.2012 kl. 06:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.