Ţegar borgin Rabaul fór í eyđi
18.6.2011 | 15:26
Strax í upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar réđust Ástralir inn í Kaiser-Wilhelmsland, og í stríđslok ráku ţeir Ţjóđverjana á brott, eftir mikiđ mannfall. Ţá tók viđ landsstjórn Ástrala fram ađ síđari heimsstyrjöldinni. Í fyrstu gekk allt vel, en svo skullu hörmungarnar yfir á nýjan leik. Áriđ 1937 hófust tvö eldgos samtímis, bćđi í Tavurvur og í Vulcan gígnum. Gosin áriđ 1937 voru mjög skađleg, og 507 manns fórust í ţorpum umhvefis Vulcan gíginn. Öskufall var gífurlegt í borginni, en hreinsun öskunnar var langt kominn ţegar nćstu ósköpin dundu yfir. Ţegar Japanir hófu ţátttöku í seinni heimsstyrjöldinni, ţá var ţeim ljóst ađ ţeir ţyrftu ađ ná yfirráđum í Rabaul, bestu höfninni í suđur hluta Kyrrahafsins. Ţeir gerđu ţví innrás áriđ 1941 og tóku Nýju Gíneu af Áströlum. Bandamenn voru mjög gramir yfir ţessum óförum, og nú hófust stanzlausar loftárásir Bandarískra herflugvéla, sem vörpuđu miklu ógrynni af sprengjum á borgina. Brátt var Rabaul orđin eins og eyđimörk eftir sprengjuárasirnar, en Japanir grófu á međan mikinn fjölda af jarđgöngum inn í fjöllin umhverfis, og komu sér fyrir neđan jarđar til ađ forđast sprengjurnar úr lofti. Enn í dag má jafnvel sjá kafbátabyrgi, sem eru inni í löngum göngum frá sjó. Eyđileggingin af völdum loftárása var algjör ţegar stríđinu lauk áriđ 1945. Ástralir tóku viđ stjórn enn á ný, ţar til nýja lýđveldiđ Papua Nýja Gínea var stofnađ áriđ 1975. Rabaul reis af grunni aftur, og blómstrađi fljótt í borg međ meir en tuttugu ţúsund íbúa. Fyrsta myndin hér fyrir ofan er tekin úr lofti og sýnir hvernig borin teygđi sig umhvergis norđur og austur hluta öskjunnar. Höfnin var ómissandi, einkum fyrir útflutning á kókoshnetuolíu og öđrum verđmćtum frá plantekrum landsins.
Í september áriđ 1994 byrja báđir gígarnir, Vulcan og Tavurvur, aftur ađ gjósa samtímis. Ríkjandi vindátt bar öskuna beint yfir borgina. Innan skamms var komiđ eins meters ţykkt öskulag yfir allan austur og suđur hluta borgarinnar, ţök féllu undan ţunganum og hús hrundu. Neđri myndin sýnir eyđileggingu af völdum öskufallsins. Nćr allar byggingar voru yfirgefnar og íbúarnir streymdu á brott. Alls lögđu 50 ţúsund manns á flótta frá hćttusvćđinu. Ţeir settust ađ í nýrri borg fyrir sunnan öskjuna: Kokopo. Eina byggingin sem enn stóđ er Rabaul Hotel, en eigandinn Susie McGrade neitar ađ gefast upp og heldur rekstri hótelsins áfram í gangi, úti í miđri auđninni. Framtíđin er ekki sérlega björt fyrir Rabaul, en höfnin góđa er enn mjög mikilvćg og reyndar ómissandi fyrir ţennan hluta Nýju Gíneu.
Meginflokkur: Vísindi og frćđi | Aukaflokkur: Rabaul | Breytt s.d. kl. 15:28 | Facebook
Athugasemdir
Mjög áhugavert, takk fyrir mig.
Rafn Haraldur Sigurđsson (IP-tala skráđ) 19.6.2011 kl. 17:18
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.