Ćvintýraferđ til Indónesíu
3.8.2010 | 11:22
Ég var allan júlí mánuđ í Indónesíu. Í ţeta sinn ferđađist ég um austur eyjarnar, ásamt 25 áhugamönnum, og konum um jarđfrćđi og náttúru og menningu eyjanna. Ferđin hófst í Balí, en síđan var siglt í austur átt til Lombok, Satonda, Sumbawa, Komodo, Rinca, Flores og víđar. Fararkostur okkar var 45 metra langur seglbátur, Sea Safari 8, hefđbundinn tveggja mastra kútter, rammbyggđur úr stórum og digrum harđviđarplönkum, sem kom sér vel. Eina nóttina sigldi hann á bjarg viđ suđur strönd Flores eyjar, en sterkir straumar, undiraldan og vindur á Indlandshafi hafđi boriđ okkur út af leiđ, og á klettana.
Viđ höggiđ brotnađi baugspjótiđ af, reiđingin skekktist, og allir köstuđust fram úr kojunum. En enginn leki kom á bátinn, og viđ héldum ótrauđir áfram til nćstu eyjar. Reyndar er Flores eyja mjög sérstök. Ţar höfđu portúgalir mikil áhrif lengi vel, og flestir eyjaskeggjar eru kaţólskir og sumir tala jafnvel portúgölsku. Viđ komum í eitt af askekktustu ţorpum Flores, sem er Bena. Ţar er eiginlega einn steinaldarmenning, viđ rćtur eldfjallsins Inerie. Hér er svokölluđ megalithic menning, eđa dýrkun ţar sem stórir steinar skifta miklu máli. Íbúar hafa flutt risastór björg frá eldfjallinu og inn í ţorpiđ, ţar sem ţeim er komiđ fyrir til ađ mynda altari til fórna og trúariđkana. Ţetta eru stórir stuđlar af basalti og andesíti, ţaktir skófum og mosagróđri.
Á Flores eru ađ minnsta kosti 15 virk eldfjöll, en í gígum ţeirra eru nokkur fögur og litrík stöđuvötn. Auđvitađ komum viđ víđ á Komodo eyjunum og heimsóttum Komodo drekana. Einnig var dvaliđ nokkra daga á Balí, til ađ njóta hins besta sem Indónesía hefur uppá ađ bjóđa. Er farinn ađ hugsa til nćstu ferđar ţarna austur á bóginn, en ţarf endilega ađ finna annan bát, eđa ađ minnsta kosti betri skipstjóra
Meginflokkur: Vísindi og frćđi | Aukaflokkur: Ferđalög | Breytt s.d. kl. 13:50 | Facebook
Athugasemdir
Er ţú ekki talsvert heimavanur ţarna austur frá ,eđa áttu ţér alnafna sem er oft 'citerađur' ţegar eldfjallarannsóknir í Indónesíu br á góma.?
Bjössi (IP-tala skráđ) 3.8.2010 kl. 14:35
Ég hef nú ekki hitt neina nafna mína ţarna fyrir austan, en hef starfađ viđ rannsóknir á eldfjöllum í Indónesíu síđan 1986.
Kveđja
Haraldur
haraldur (IP-tala skráđ) 3.8.2010 kl. 15:31
Er hćgt ađ komast međ í svona ferđ sem uppvaskari, ef mađur borgar kaupiđ sjálfur?
Dingli, 4.8.2010 kl. 03:05
Ţađ er merkilegt hvađ marga langar í svađilför. Skipbrot er ekkert grín, en svo virđist sem slíkt sé ógleymanlegt og jafnvel skemmtileg minning, ef allt fer vel ađ lokum, eins og hér var. Félagar mínir segja ađ ţetta sé besta ferđin okkar til ţessa, eftir meir en 20 ára flakk.
Haraldur Sigurđsson, 4.8.2010 kl. 06:46
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.