Merkir molar
27.5.2010 | 20:47
Hér eru myndir af steinbrotum úr einni hraunbombunni sem ég safnaði á gígbrúninni á Eyjafjallajökli hinn 26. maí. Svarta efnið er glerkennt andesít úr bombunni. Gráa efnið er gabbró eða kristalríkt berg. Það eru brot af djúpbergi sem kvikan ber upp. Ástæðan fyrir því að ég hef mikinn áhuga á þessum steinum er sú, að þeir geta varpað ljósi á eitt mikið vandamál: kvikan sem kemur upp úr gígnum í Eyjafjallajökli í toppgíg er ekki sú sama og kvikan sem kemur upp í fjallið úr möttlinum. Það er eitthvað sem gerist þar á milli. Kvikan sem kemur upp úr möttlinum heitir alkalí basalt. Hún gaus á Fimmvörðuhálsi. Kvikan sem gýs í toppgíg Eyjafjallajökuls heitir andesít. Ein hugmynd er sú, að alkalí basalt kvikan verði fyrir breytingum í jarðskorpunni og afleiðingin sé andesít. Það getur gerst á margan hátt, til dæmis með því að mikið magn af kristöllum vex í alkalí basalt kvikunni, og að hún breyti um efnasamsetningu af þeim sökum. En það eru margar aðrar kenningar sem gætu skýrt málið. Við erum að kanna þetta atriði með ýmsum efnagreiningum á þessum steinum. Meira um það síðar....
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Eyjafjallajökull, Bergfræði | Breytt s.d. kl. 20:49 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Haraldur
Takk kærlega fyrir..... spennandi verður að sjá hvaða kenning um efnasamsetningu kvikunnar stendur upp úr. kveðja Helga
Helga S (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 00:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.