Hættulegt að anda


 fusioncharts.jpg

Kína er miðstöð alls iðnaðar á jörðu, en því fylgir gífurleg mengun. Það stafar einkum af því að aðal orkugjafi kínverja eru brennisteinsrík kol. Í Peking hefur mengunin verið svo slæm, að Bandaríska sendiráðið lét setja upp skynjara hjá sér árið 2008, sem mælir daglega mafn af P2.5 rykkornum, en þau eru hættulegust heilsu manna. Þetta er svipað að eðli og svifryk það sem myndast í Rekjavík á vetrum vegna umferðar. Síðan hefur Sendiráðsmælirinn verið eins og hornsteinn fyrir mælingar loftgæða í Kína: það eina sem menn treysta.

Hættumörkin á loftgæðum eru talin 300 P2.5 einingar, loft þar yfir er talið mjög hættulegt heilsu og allir verða að halda sig innan dyr á meðan slíkt ástand ríkir. Myndin sýnir mælingar í Peking undanfarna daga. Það er langt yfir hættumörkum og hefur í dag náð upp í 446 einingar.

Kínversk stjórnvöld hafa ekkert verið sérlega ánægð með að erlent ríki sé að fylgjast með loftgæðum þeirra, en þetta eru nú einu gögnin sem allir treysta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Haraldur, það er með ólíkindum að ein þjóð skuli haga sér svona í loftlagsmálum, það endar með því að það verður ekki byggilegt á jörðinni út af svona vitleysingum!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 5.1.2017 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband