Beerenberg og hvalfangarar
7.10.2016 | 13:25
Vinur minn hér í Newport rekur gallerí með gömlum listaverkum víðsvegar að úr heiminum. Þar á meðal var þetta málverk eftir Hollendinginn Bonaventura Peeters (1614-1652). Það eru hvalveiðimenn að verki undan ströndum Jan Mayen, en Beerenberg eldfjall gýs ákaft uppi á landi. Myndin er frá um 1640. Hann seldi myndina nýlega til Hvalasafnsins í New Bedford í Massacussets. Verkið minnir okkur á, að Hollendingar sigldu reglulega á norðurslóðir til hvalveiða og versluðu einnig töluvert við Grænlendinga, löngu áður en Hans Egede sigldi til Grænlands árið 1721. Það er því ekki útilokað að Hollendingar hafi rekist á síðustu Íslendingana á Grænlandi, áður en þeir dóu út í kringum árið 1450. En Hollendingar voru á norðurslóðum aðallega til að veiða norðurhvalinn. Hann er sléttbakur eða grænlandssléttbakur, sem heldur sig við ísröndina og var hér í miklu magni á sautjándu öldinni. Sléttbakurinn er mjög hægfara og því auðvelt að skutla hann. Um 200 Hollendingar voru í vinnu hér í hvalstöðinni á Jan Mayen á sautjándu öldinni. Veiðar Hollendinga lögðust af um 1640, en þá var þessi hvaltegund nær útdauð í norðurhöfum. Hollendingar reistu einnig hvalstöðvar á þessum tíma á Íslandi á Ströndum, á Kóngsey, Strákatanga og Strákey. Nafnið Jan Mayen er hollenskt og var gefið eynni árið 1620, eftir hollenskum skipstjóra. Nafnið Beerenberg er einnig hollenskt, og þýðir björnsfjall, eftir hvítabirninum. Það er virkt eldfjall staðsett á Mið-Atlantshafshryggnum, sem gaus síðast árið 1985.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Eldfjallalist, Eldgos, Grænland | Breytt 8.10.2016 kl. 04:16 | Facebook


stjornuskodun
loftslag
omarbjarki
emilhannes
agbjarn
postdoc
nimbus
hoskibui
turdus
apalsson
svatli
greindur
askja
juliusvalsson
redlion
kamasutra
vey
blossom
aslaugas
agny
annaeinars
hekla
brandurj
gisgis
einarorneinars
fornleifur
gessi
helgigunnars
himmalingur
kolgrimur
keli
brenninetla
jokapje
thjodarskutan
photo
kollakvaran
hringurinn
kristjan9
maggadora
marinomm
nhelgason
hross
duddi9
sigurfang
summi
villagunn










Athugasemdir
Sæll Haraldur,
takk fyrir áhugaverða blogsíðu.
geturu sagt okkur meira um jarðfræði Jan Mayen?
kv
Höskuldur
Höskuldur Jónsson (IP-tala skráð) 16.10.2016 kl. 14:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.