Bláa móðan frá Holuhrauni
15.10.2014 | 15:33
Hvers vegna er móðan frá eldstöðvunum í Holuhrauni blá? Myndin fyrir ofan er dæmi um blámóðuna, eins og hún lítur út frá geimnum. Hún er reyndar blá á sama hátt og himininn er blár. Litur á efni eða hlut er að mestu leyti ákvarðaður af því hvernig efnið drekkur í sig litrófið. Rauður bolti er rauður vegna þess að hann drekkur í sig alla liti litrófsins NEMA þann rauða. Rauða ljósið endurkastast frá boltanum og það er því liturinn sem við sjáum. Ljósið sem kemur frá sólinni er hvítt, en er reyndar í öllum regnbogans litum, eins og Isaac Newton sýndi fram á, fyrstur manna. Lofthjúpurinn inniheldur margar tegundir gaskenndra efna. Þegar sólarljósið berst inn í lofthjúpinn, þá dreifist hluti af ljósinu, en efni í lofthjúpnum drekka í sig annan hluta ljóssins. Aðeins um 75% af ljósinu berst alla þeið niður að yfirborði jarðar. Himinninn er blár vegna þess að gas og frumefni í lofthjúpnum drekka í sig flestar bylgjulengdir litrófsins nema bláa litinn. Sá blái er á þeim hluta litrófsins sem hefur mun styttri bylgjulengd (um 400 nm) en til dæmis rautt og grænt. Hvort það eru mólekúl, agnir eða gas frumefni í lofthjúpnum, þá hafa þau sömu áhrif á litróf sólarljóssins. Móðan frá eldgosinu samanstendur af bæði dropum, mólekúlum og gaskenndum frumefnum, sem dreifa og drekka í sig itróf sólarljóssins á ýmsan hátt. En eldfjallsmóðan drekkur ekki í sig bláa hluta litrófsins og því er móðan bláleit.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Bárðarbunga, Eldfjallagas | Facebook
Athugasemdir
Það er kannski vert að nefna á að blái liturinn stafar einungis að hluta til vegna þess að efnin drekka frekar í sig (e. absorption) ljós á lengri bylgjulengdum. (Blái) Liturinn er að mestu leiti óbeint endurkast(e. indirect scattering) ljóss, þar sem ljós á stuttum bylgjulengdum endurkastast frekar í "allar" áttir, en ljós á lengri bylgjulengdum. Þetta skýrist með Rayleigh scattering sem segir til um hvernig endurkast ljóss er háttað eftir bylgjulengdum og gildir um efniseindir sem eru minni en bylgjulengd ljóss. Sjá http://en.wikipedia.org/wiki/Rayleigh_scattering
Eðvald Ingi (IP-tala skráð) 16.10.2014 kl. 14:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.