Ekvador valdi dollarann$
21.5.2014 | 08:18
Árið 2000 kaus ríkið Ekvador í Suður Ameríku að taka upp einhliða ameríska dollarann sem opinbera mynt landsins. Íbúum var gefið eitt ár til að skila inn sinni gömlu mynt. Ekvador hafði barist við mikla spillingu og verðbólgan var um 60% árið fyrir umskiftin.
Hver er reynslan og getum við lært eitthvað af þessu, í sambandi við umræðu varðandi íslensku krónuna? Aðstæðurnar eru að vísu allt aðrar en hér, en samt er fróðlegt að skoða hvað hefur gerst eftir dollarvæðingu landsins. Í Ekvador eru um 16 milljón íbúar, sem flytja út banana, olíu, rækjur, gull og bóm. Árið fyrir dollaravæðinguna hafði efnahagur dregist saman um 7.3% og algjört hrun blasti við. Árið 2000 snérist þetta við og efnahagur óx um 2.3%, 5.6% árið á eftir, 6.9% árið 2004 og svo framleiðis.
Önnur jákvæð hlið er sú, að Ekvador getur ekki leyst sig út úr efnahagsvanda í framtíðinni eingöngu með því að prenta peningaseðla. En því fylgir sú neikvæða hlið að ríksistjórn Ekvador ræður ekki að öllu leyti yfir mikilvægum ákvörðunum um mynt sína, heldur er sú stjórn í ríkisbanka Bandaríkjanna í Washington DC.
Hvernig tóku íbúar Ekvador nýja dollaranum? Hé kom í spilið alveg ótrúleg tilviljun. Það vildi svo vel til, að sama árið, 2000, gaf ameríski bankinn út gullpening, sem er eins dollara virði og á honum er greypt mynd af indíánakonu, með barn sitt á bakinu. Þetta er hin fræga Sacagawea, sem veitti landkönnuðunum Lewis og Clark leiðsögn vestur yfir Klettafjöllin og að strönd Kyrrahafsins árið 1804. Hinir innfæddu í Ekvador sáu strax andlit sem þeir þekktu og vildu helst engan annan pening nema gullpeninginn með mynd Sacagawea. Síðan hefur nær allur forðinn af þessum gullpening flutst frá Bandaríkjunum til Ekvador.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Hagur, Mannfræði | Facebook
Athugasemdir
Þessi mynt er ekki úr gulli. Þetta er gull-lituð málmblanda og því ekki verðmætari sem málmur en íslenzkur tíkall.
geirmagnsson (IP-tala skráð) 21.5.2014 kl. 09:12
Eru bara svo ólíkar aðstæður að alveg ósambærilegt er við stöðu sem Ísland er í.
Td. hafði dollaraseríngin gerst óopinberlega á mörgum árum. Ekvadorar (og fleiri lönd þar um slóðir) höfðu notað dollara grimmt og td. skilst manni að um helmingur peningamagns í umferð hafi verið dollarar. Þeir notuðu dollarar í mörgum viðskiptum og td var sóst eftir að geyma inneignir í bönkum í dollurum.
Einhverra hluta vegna hefur þetta ekki enn gerst á Íslandi að neinu ráði. þ.e. notkun alvörugjaldmiðils meðfram krónunni. Sem er eiginlega furðulegt. Td. bara að aldrei skildi hafa þróast að nota danska krónu.
Ennfremur er eitt sem eg átta mig ekki alveg á í Ekvador, að sagt er að þeir hafi samt eigin mynt meðfram eða í einföldum viðskiptum oþh. þ.e. mynt sem sé fasttengd dollaramynt og jafngildi dollaramynta.
Átta mig eki alveg á hvernig það getur virkað. Þ.e.a.s. að manni skilst að þeir framleiði sjálfir slíka mynt. En það hlýtur þá að vera undir ströngu eftirliti, býst eg við.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.5.2014 kl. 15:58
Tækniþróunin er svo hröð í nútímasamfélagi heimsins, að alþjóðleg rafmynt með raunverulegri innistæðu er rétt handan við hornið. Regluverk og lög viðkomandi gjaldeyrisríkja er nauðsynleg byrjun.
Óþarfi að rifrildis-flækja málin með krónum, evrum og dollurum, núna á síðustu tímum innistæðulausra skeinipappírs-seðla peningaprentunar-ríkjanna.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.5.2014 kl. 23:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.