Iðunn er orðin Heit! - Eldfjöll á Venusi
11.4.2010 | 17:49
Nú þegar verulega er að draga úr eldvirkni á Fimmvörðuhálsi er kominn tími til að líta í kringum sig og veita öðrum eldfjöllum athygli. Í þetta sinn eru það eldfjöllin á plánetunni Venusi, en nýlega kom í ljós að þau eru sennilega virk. Þótt Venus sé lík jörðu á margan hátt, þá er þetta mjög skrítinn og óhollur staður. Hér er yfirborðshitinn hvorki meira né minna en 450 stig (nóg til að bræða blý), og lofthjúpurinn er svo þungur og þykkur að loftþrýstingur á yfirborði er eins og að vera í kafi í sjónum á jörðu á 1000 metra dýpi. Loftið er um 97% koltvíoxíð, en auk þess eru ský sem eru samansett af örsmáum úða af brennisteinssýru. Lofthjúpurinn er svo þykkur að yfirborð pláneturnar hefur ekki sést, nema í radar. Venus hefur þvermál sem er aðeins 330 km minna en þvermál jarðar, en samt virðast jarðkraftarnir vera allt aðrir. Hér eru ekki flekahreyfingar áberandi, en í staðinn er mjög mikið af stökum og stórum eldfjöllum, og eru mörg þeirra miklir risar sem eru 100 til 300 km í þvermál. Alls eru þekkt um 1740 eldfjöll á Venusi. Mörg eru dyngjur, en sum eru eins og stjörnur í laginu, með fjölda geisla sem stafa út frá frá miðjunni. Þessi eldfjöll eru nefnd arachnoids, vegna þess að þau líkjast könguló með margar lappir.
Yfirborðið er frekar ungt, ef dæma má út frá þeirri staðreynd að ekki finnast margir gígar eftir loftsteinsárekstra á Venusi. Enn höfum við ekki orðið vitni af eldgosum á Venusi, en nýjustu athuganir sýna að sum eldfjöllin eru heit og því sennilega virk. Myndin sem fylgir er af fjallinu Idunn Mons (Idunn er auðvitað Iðunn)
Geimfarið Venus Express hefur gert mælingar sem sýna ung hraun í hlíðum Iðunnar og má fræðast um það ferðalag frekar hér.
Það er algengt að vísindamenn sem stunda geimrannsóknir gefa fjöllum nafn sem er tengt goðafræði ýmissa landa á jörðu. Þannig eru öll goðin og guðirnir í norrænu goðafræðinni komin út í geiminn. Allir íslendingar muna sjálfsagt að í norrænu goðafræðinni er Iðunn gyðja endurnýjunar, yngingar, hreinsunar, látleysis, breytinga, eftirvæntingar og barna.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Elfjöll í geimnum, Loftsteinar | Breytt s.d. kl. 17:52 | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir fínan pistil. Var að spá í að skrifa um þetta en fyrst þú ert búinn að gera þessu ágæt skil, er engin ástæða til að endurtaka það.
Þess í stað má ég til með að "plögga" okkur. Það er nefnilega ágæt umfjöllun um Venus á vefnum okkar og þar er aðeins komið inn á jarðfræðina fyrir þá sem hafa kannski áhuga á.
http://www.stjornuskodun.is/venus
http://www.stjornuskodun.is/venus#jardfraedi
Venus sést annars á vel á kvöldhimninum þessa dagana.
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is), 11.4.2010 kl. 19:29
Ég vona að Stjörnufræðivefurinn bloggi einnig um þetta efni, því vafalaust hafið þið einnig aðra lesendur. Takk fyrir ábendingarnar.
kv
Haraldur
Haraldur Sigurðsson, 11.4.2010 kl. 19:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.