Nýjustu færslur
- Goslok í Sundhnúksgígaröðinni?
- Storknun kvikugangsins er að draga úr kvikurennsli.
- Frekari skýring á kvikurennsli og spá um goslok.
- Endurnýjuð spá um goslok í Sundhnúksgígaröðinni.
- Einföld spá um lok umbrota í Grindavík
- Styrkið vísindin til að verjast náttúruhamförum
- Lárétt kvikuinnskot og dýpi jarðskjálfta (framhald)
- Lárétt kvikuinnskot og dýpi jarðskjálfta
- Annus Horribilis
- Hraunkæling mun ekki virka á svona hraun
- Fagurt sprungugos
- Það er búið að opna glufu
- Eldfjallafræðingur með kímnigáfu
- Gestablogg frá Árna B. Stefánssyni, augnlækni
- Hvorir eru betri á Reykjanesið og Grindavík: Innfluttir ítal...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 23
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 163
- Frá upphafi: 1322351
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 130
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
- Viðtal Stöð 2 Eyjan
- Haraldur aftur á 6ö Minutes
- Eldfjallasafn
- Der Spiegel viðtal Hér ræðir Der Spiegel við Harald um eldfjöll
- Tambora
- Santóríni
- Kastljós 2012 Hverir á hafsbotni
- Tambora 1815
- Iceland Review viðtal
- ESSI Vefsíða ESSI
- National Geographic Þríhnúkagígur
- Haraldur í USA Today
- RUV Uppruni Vatns
- http://<iframe width=
- Laugardags Haraldur talar við Egil Helgason
- Laugardags Haraldur talar við Egil Helgason
- Laugardagsviðtalið Haraldur með Agli Helgasyni
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Júlí 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Febrúar 2020
- Nóvember 2019
- Ágúst 2019
- Mars 2019
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júní 2016
- Apríl 2016
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Desember 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- stjornuskodun
- loftslag
- omarbjarki
- emilhannes
- agbjarn
- postdoc
- nimbus
- hoskibui
- turdus
- apalsson
- stutturdreki
- svatli
- greindur
- askja
- juliusvalsson
- tryggvigunnarhansen
- redlion
- kamasutra
- vey
- blossom
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- hekla
- brandurj
- gisgis
- einarorneinars
- elfarlogi
- fornleifur
- gessi
- miniar
- helgigunnars
- himmalingur
- kolgrimur
- keli
- brenninetla
- jokapje
- thjodarskutan
- thaiiceland
- photo
- kollakvaran
- hringurinn
- kristjan9
- maggadora
- marinomm
- nhelgason
- 123
- hross
- duddi9
- sigurfang
- summi
- ursula
- villagunn
Útbreiðsla Hraunsins á Fimmvörðuhálsi
4.4.2010 | 13:49
Mér hafa borist fyrirspurnir varðandi útbreiðslu hraunsins. Ég vil benda á landakort og myndir sem Eyjólfur Magnússon hefur gert og birtast á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Hér fylgir með kort Eyjólfs frá 31. marz, en það er síðasta kortið sem hann birtir. Þar kemur vel fram rennsli niður Hrunagil og einnig í Hvannárgil. En þar vantar ennþá nýju sprunguna sem myndaðist rétt fyrir vestan fyrri sprunguna. Auk þess læt ég fljóta með aðra mynd frá Eyjólfi Magnússyni, en hún er landslagsmynd, séð frá norðri, yfir gilin tvö og hraunið. Þann dag var flatarmál hraunsins orðið 0,95 ferkílómetrar. Nú í dag er það tvímælalaust vel yfir einn ferklílómetri að flatarmáli.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Bergfræði, Eyjafjallajökull | Breytt 5.4.2010 kl. 11:42 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Færsluflokkar
- Aska og flug
- Askja
- Bandaríkin
- Bárðarbunga
- Bergfræði
- Berggangar
- Eldfjallagas
- Eldfjallalist
- Eldgos
- Elfjöll í geimnum
- Endalok vaxtar
- Eyjafjallajökull
- Ferðalög
- Grænland
- Hafið
- Hagur
- Hekla
- Jarðeðlisfræði
- Jarðefni
- Jarðfræðikort
- Jarðhiti
- Jarðskjálftar
- Jarðskorpan
- Jarðsköpun
- Katla
- Kjarninn
- Loftslag
- Loftsteinar
- Mannfræði
- Mars
- Menning og listir
- Möttullinn
- Plánetur
- Rabaul
- Reykjanes
- Santóríni
- Snæfellsnes
- Tindfjallajökull
- Vestmannaeyjar
- Vesúvíus
- Vísindi og fræði
- Yellowstone
Myndaalbúm
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Með fullri virðingu fyrir Eyjólfi Magnússyni held ég að kort og mynd af hraunstraumnum sé ekki alveg rétt.
Að kvöldi 1. apríl var ég sunnan í Útigönguhöfða og sá þar aðeins einn hraunstraum sem féll niður í Hvannárgil. Það er sá sem er sá eystri á mynd og korti með bloggi Haraldar.
Vestan megin hafði einungis runnið bræðsluvatn undan hrauni þar sem Eyjólfur merkir hraunfoss og raunar hafði bræðsluvatn runnið miklu víðar.
Held raunar að enn sé aðeins einn hraunstraumur ofan í gilið þó ugglaust sé stutt í að þeir verði fleiri. Dreg þessa ályktun af vefmyndavél Vodafone af Þórólfsfelli.
Sé hins vegar eitthvað að marka kort og mynd Eyjólfs að öðru leyti held ég að stutt verði að hraun renni ofan í Innra-Suðurgil. Ofan í botni þess er jökull og má þá búast við talsverðu flóði í Hvanná. Raunar virðist núna vera eitthvað rennsli þangað ef marka má gufubólstra á Vefmyndavélum.
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 4.4.2010 kl. 18:00
Þakka þér fyrir athuganir þínar. Ég held að kortið sé byggt á radar myndum sem teknar eru af flugvél Landhelgisgæzlunnar. Vafalaust eru einhverjar villur, en samt held ég að kortið sé góð ábending um útbreiðslu hraunsins.
Haraldur Sigurðsson, 4.4.2010 kl. 18:08
Thakka stórfródlega og mjog áhugaverda pistla. Thad er eitt sem ég hef velt fyrir mér vardandi thetta gos og aetla ég ad opinbera algera fáfraedi mína med einni spurningu til thín Haraldur.: Thar sem svo stutt er frá núverandi gosstodvum ad giljunum, thar sem hraun rennur nú nidur, eru engar líkur á ad lárétt kvikuskot nái ad brjóta sér leid í átt ad theim og thad hreinlega gjósi thar, eda er thetta eitthvad sem er algerlega óhugsandi?
Halldór Egill Guðnason, 4.4.2010 kl. 23:44
Virkilega gaman að lesa pistla þína og maður er öllu fróðari dag frá degi :)
takk kærlega
Björg F (IP-tala skráð) 5.4.2010 kl. 00:33
Halldór: Það er ekkert því til fyrirstöðu að gos verði í giljunum, en sprungurnar virðast ekki lengjast í þá átt.
Haraldur Sigurðsson, 5.4.2010 kl. 02:27
Sæll Haraldur,
Er möguleiki á að þú getir útskýrt fyrir mér litina á óróagöfum veðurstofunnar?
Ég geri mér grein fyrir tíðnunum og muninum á ferð þeirra í gegnum vökvakend efni.
það sem vekur hinsvegar áhuga minn núna er það nú dregur saman með gröfunum, sem hefur hingað til ekki verið að gerast.
Er einhver fræðileg skýring á því hversvegna þetta er að gerast?
kær kveðja :)
Friðbjörn B. Möller (IP-tala skráð) 6.4.2010 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.