Sprengja plús eldflaug = mikil hætta
3.9.2017 | 19:22
Á laugardag sprengdu yfirvöld í Norður Kóreu fyrstu vetnissprengju sína í neðanjarðarbyrgi í Punggye-ri tilraunastöðinni í norðaustur Kóreu. Þetta er sjötta kjarnorkusprengjutilraun Kóreumanna og sú langstærsta. Bylgjur sem bárust í gegnum jarðskorpuna frá sprengingunni komu fram sem skjálfti af stærð 6.3, sem er jafnt og stærstu skjálftar á Íslandi. Átta mínutum seinna kom annar minni skjálfti, sem var um 4 stig, og myndaðist sennilega þegar hellirinn hrundi, þar sem sprengjan var sett af stað. Talið er að orkan í þessari sprengingu hafi verið 100 til 150 kílótonn, en til samanaburðar voru sprengingarnar í Hiroshima og Nakasagi í Japan um 15 kílótonn. Síðasta sprengja Norður Kóreu árið 2016 var til samanburðar aðeins 10 til 30 kílótonn, svo þeim Kim forseta og félögum fer hratt fram í vopnagerð á þessu tíu árum, síðan Norður Kórea hóf starfssemi að væðast kjarnavopnum.
Stöðvar sem fylgjast með kjarnorkusprengingum um alla heim skrá skjálftabylgjur og einnig hljóðbylgjur, en átta stöðvar skrá auk þess geislavirk efni sem berast út í lofthjúp jarðar við sprengingar. Jarðskjálftafræðingar geta auðveldlega aðgreint skjálfta sem stafa af náttúrulegum jarðskorpuhreygingum, og skjálfta frá sprengingum. Það eru tvenskonar bylgjur, sem myndast: P bylgjur og S bylgjur. Í venjulegum jarðskjálftum er P bylgjan lítil en S bylgjan stór. Sprengingar mynda hins vegar stóra P bylgju og minni S bylgju. Stórar kjarnorkusprengingar hafa miklu hærra P/S hlutfall en jarðskjálftar.
Norður Kórea er því búin að sýna fram á að þeir hafa sprengjuna klára og einnig að þeir hafa langdrægar eldflaugar sem geta borið hana alla leið til stórborga í Norður Ameríku. Ástandið er vægast sagt eldfimt!
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Mannfræði | Breytt s.d. kl. 23:44 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Haraldur!
Ef að þú værir framkvstj.SAMEINUÐUÞJÓÐANNA hvað myndir þú þá ráðleggja að gert yrði í þessari stöðu?
(Fordæmingar eru eins og að skvetta vatni á gæs og breyta engu).
Jón Þórhallsson, 3.9.2017 kl. 19:34
Get ekki varist aðdáunar á hæfni þessarara fátæku þjóðar.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 3.9.2017 kl. 22:25
Það er spurning hver sé ábyrgð framkvstj.SAMEINUÐUÞJÓÐANNA?
Ef að Norður-kórea myndi sprengja upp GUAM-eyjar;
mætti þá ekki segja að framkv.st. SAMEINUÐUÞJÓÐANNA hafi brugðist sem einhverskonar "jarðarlögreglu?"
Þyrfti hann ekki að hafi meiri völd og ábyrgð?
Jón Þórhallsson, 4.9.2017 kl. 10:24
Jón: Sameinuðu Þjóðirnar er máttlaus og tannlaus stofnun, sem kemur yfir leitt eingu í verk, enda sjórnað af stórveldum, sem vilja fara sína leið. Þú skalt ekki væntast neins úr þeirri átt.
Haraldur Sigurðsson, 4.9.2017 kl. 11:36
Haukur: Sammála þér, en þetta er fjölmenn þjóð og töluverðar auðlindir í jörðu. En kraftur þeirra við hervæðingu er ótrúlegur. Því miður þjáist þjóðin. sem býr við aðstæður likar herbúðum.
Haraldur Sigurðsson, 4.9.2017 kl. 12:51
Ættu BANDAMENN að vera fyrri til með að eyðileggja allar herstöðvar í N-kóreu með sprengjum án kjarnorku?
Eins og John Wayne er fyrri til að skóta bófann í einvígi kúrekamyndum?
Eða á alþjóðasamfélagið að bíða eftir að ljóti kallinn sprengi bandamenn í loft upp; hvort sem að það yrði á GUAM-eyju eða annarsstaðar?
Jón Þórhallsson, 4.9.2017 kl. 13:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.