Houston í kaf
29.8.2017 | 17:47
Flóðin í borginni Houston í Texas eru miklar hamfarir, en þar hefur nú rignt stanslaust í þrjá daga og úrkoman er nú komin upp undir 50 tommur alls, eða yfir 123 sentimetra á þeim tíma. Þetta átti að vera svokallað 500 ára flóð (flóð, sem er svo sjaldgæft að það gerist aðeins á nokkurn veginn 500 ára fresti), en staðreyndin er sú, að í Houston hafa komið þrjú slík 500-ára flóð síðustu þrjú árin!
Reynslan sýnir okkur að það er ekki auðvelt að spá um komandi eða yfirgnæfandi hamfarir út frá því sem undan er gengið. Lítið á súluritið hér fyrir ofan. Það sýnir tíðni storma á hverjum áratug, sem orsaka stórrigningar í Bandaríkjunum frá 1900 til vorra daga. Ég held að það sé nokkuð ljóst að tíðni þeirra fer vaxandi. Það er breyting í gangi. Sú breyting er hnattræn hlýnun, en vaxandi tíðni stórrigninga og fellibylja er ein afleiðing hnattrænnar hlýnunar, þótt æstu völd í Bandaríkjunum neiti því og stinga bara hausnum í sandinn eins og strúturinn.
Fellibylurinn Harvey er nú talinn einn af tíu verstu sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Tjónið er nú metið á bilinu $10 til 20 milljarðar dalir.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Loftslag | Breytt s.d. kl. 21:39 | Facebook
Athugasemdir
Hnattræn hlýnun er staðreynd. Orsakir hennar geta menn deilt um út í hið óendanlega. Ef línuritið hér á síðunni tæki til tíu þúsund ára, hversu "grótesk" yrði þá niðurstaðan, í súluriti? Maðurinn hjálpar örugglega ekki mikið til með loftgæði, það er nokkuð ljóst. Maðurinn á að gæta þess að menga sem minnst og ganga vel um og virða náttúruna. Öll umræða um loftslagsmál er komin út í skurð. Gírugir skrattar, eins og Al Gore heimsendasölumaðurinn á einkaþotunni predikar, að þetta sé allt okkur mönnunum að kenna. Honum hefur meira að segja tekist að draga ótölulega fylgjendur sína til Parísar, þar sem samkoman komst að þeirri niðurstöðu að hún gæti stjórnað hitastigi jarðar, næstu áratugi!
Það eina sem þarf, er seljanlegur mengunarkvóti.......Ísland framleiðir samkvæmt þessari dellusölumennsku hátt í tuttugu prósent orku sinnar með kjarnorku! Hálfvitarnir á fjölmiðlunum sjá ekkert, heyra ekkert, skilja ekkert, enda aular upp til hópa. Hvert fer mengunarsöluhagnaðurinn, sem seldur var úr landi, á síðasta ári?
Al Gore og aðrir líkir honum kónar mata krókinn, meðan fávísir blaðasnápar og afdankaðir pólitíkusar lepja drulluna efir hann, dag hvern.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 30.8.2017 kl. 02:59
Það var búist við þessari miklu úrkomu í Houston nokkrum dögum áður en fellibylurinn fór í land i Corpus Christi og Houston var á svokölluðu "dirty side off the Hurricane, vegna tveggja haþrystisvæða sem komu í veg fyrir venjulega leið og hraða fellibylja og þar af leiðandi fór fellibylurinn aftur út á flóann og ferðaðist á þriggja mílna hraða.
Úrkoman sem féll á Houston á 2 til 3 dögum var meiri en öll úrkoma á Íslandi á einu ári.
Þetta sáu veðurfræðingar fyrir fram. Hlýnun jarðar hefur litið með þetta að gera.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 31.8.2017 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.