Hafísinn hrapar

 zack.jpgHafísmyndun á norðurslóðum í ár er um 2 til 3 milljón ferkílómetrum á eftir venjulegu ári. Á Suðurheimsskautinu bráðnar hafís hraðar en áður.   Myndin sýnir umfang af hafís samtals fyrir Norður Pólinn og Suðurheimsskautið, frá 1978 til 2016. Alls er flatarmál hafíss á jörðu á milli 14 og 22 milljón ferkílómetrar. En það er augljóst að árið 2016 er allt öðruvísi en undanfarið, hvað snertir hafís (rauða línan). Nú er kominn nóvember mánuður og ísmyndun ætti að vera í hámarki í norðri og bráðnun í suðri. En nú árið 2016 er hafísinn langt undir meðallagi. Við erum að nálgast á toppinn, sjálfan vendipúnktinn, í hnattrænni hlýnun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Vísindamenn þurfa að vinna meiera meða landakorta-tækniteikningar;

fyrir og eftir myndir ;sem að eru teknar úr lofti

til einföldunnar fyrir almenning:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2160421/

Jón Þórhallsson, 23.11.2016 kl. 14:01

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Við þökkum þér þessar upplýsingar, og kennsluna, Haraldur Sigurðsson.

Ef við  verðum svo „heppnir“ að það hlýni aðeins meira, og að það verði meiri  mengum, það er meiri „kolefni“ í andrúmsloftinu fyrir jurtirnar til að framleiða mat og aðrar nytjavörur er þá hugsanlegt að allt fari að ganga vel í ræktuninni?

Er hugsanlegt að Sahara eyðimörkin í Afríku, svæðið í kring um Karthago (Carthage) verði aftur kornforðabúr Evrópu?

Gangi þér allt í haginn.

Egilsstaðir, 23.11.2016  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 23.11.2016 kl. 14:35

3 Smámynd: Haraldur Sigurðsson

Jónas: Því miður verður það þvert öfugt. Hnattræn hlýnun veldur því að eyðimerkiurbelti jarðarinnar munu færast fjær miðbaug, til norðurs og suðurs. Afríkueyðimörkin er ´leið til Miðjarðahafsins. Þar með færast önnur gróðurbelti norðar, og á Íslandi verða vínekrur í framtíðinni -- en á heildina litið mun uppskera hrynja á jörðinni vegna hnattrænnar hlýnunar.

Haraldur Sigurðsson, 23.11.2016 kl. 19:16

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Haraldur gott og vel með hlýnun jarðar og hvað þá með vínekrur á Íslandi en hvað með veðurfarssögu okkar og hvað með borkjarnanna úr bæði Grænlands og Vatnajökli. Hvað með borkjarna eða sýni úr setlögum sjávar.

Sérðu ekki að síðustu 70 árin þá hefir mannkynið allaveganna í vestræna heiminum verið á fullu með að betrumbæta sig en áður voru spúandi verksmiðjur sem sjást varna lengur og er nú á því stigi að geta notað thorium og margt annað. Það er margt meira eins og þú veist og engin hætta á heimsendi af völdum manna nema syndaflóðið síðara sem fer með ógnarhraða yfir aumu Evrópu og Ísland en taktu eftir að Grænlendingarnir myndu skjóta þetta fólk ef það færi að streyma inn til þeirra en engar áhyggjur við munum geyma það á okkar kostnað.

Valdimar Samúelsson, 24.11.2016 kl. 10:17

5 Smámynd: Haraldur Sigurðsson

Valdimar: Borkjarnar frá Grænlandi og af hafsbotni segja okkur sögu liðinna tíma, en ekki um framtíðina. Þú segir að s´púandi verksmiðjur sjáist ekki lengur. Það er rétt:  þær eru allar komnar í þriðja heiminn, þar sem heimilt er að menga að vild. Kæinverjar eru að kafna í þessu.

Haraldur Sigurðsson, 24.11.2016 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband