Bárðarbunga er bólugrafin
12.3.2015 | 23:44
Hvernig lítur Bárðarbunga út eftir allar þessar hamfarir neðan jarðar? Hefur hún látið á sjá? Svar við því fáum við með því að skoða þessa mynd, sem TerraSAR-X radar gervihnöttur Þjóðverja tók. Það er German Aerospace Center (DLR) eða Geimrannsóknastöð Þýskalands, sem tók myndina, en Fjarkönnun ehf leyfir okkur að birta hana hér. Við þökkum Ágústi Guðmundssyni fyrir. Radarmyndin er sérstök, því að upplausn um 1 metri. Hún er tekin hinn 3. mars 2015. Það sem maður tekur strax eftir eru sigkatlarnir, sem raða sér eftir brúnum öskjunnar. Þeir myndast einmitt þar sem jökullinn er þynnstur. Í miðju öskjunnar er þykkt jökuls um 800 metrar, en um það bil 200 metrar á brúnum öskjunnar, þar sem bergið kemur næst yfirborði. Maður tekur stax eftir því að það eru þrír stórir sigkatlar, og tveir minni. Þeir raða sér á öskjubrúnina, en sennilega er það vegna þess að hiti leitar upp með berginu og bræðir ísinn fyrir ofan. Að öllum líkindum hefur hitauppstreymi vaxið á meðan eldsumbrotunum stóð, en þá var mikil hreyfing á hringlaga misgengi, sem markar útlínur öskjunnar. Mér þýkir líklegast að nú dragi hægt og hægt úr því uppstreymi hita og að sigkatlarnir fyllist aftur af snjó með tímanum.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Bárðarbunga, Eldgos | Facebook
Athugasemdir
Á flugi yfir Bárðarbungu í janúar náði ég myndum af 2-3 sigkatlanna og skelli þeim kannski inn á bloggsíðu mína við tækifæri í dag.
Ómar Ragnarsson, 13.3.2015 kl. 12:29
Magnús Tumi hefur leitt mælingar til að fylgjast með þróunn þessara katla frá því september með reglubundnum yfirflugum. Einnig hefur hópur á vegum Freysteins Sigmundssonar unnið úr radargögnunum úr bæði TerraSAR-X tunglunum og úr öðrum SAR gervitunglum. Flestir þessara katla byrjuðu að myndast meðan gangurinn var að ferðast norður í Holuhraun eða fljótlega í kjölfarið. Sumir voru þó þekktir frá því áður. En MTG hefur nokkuð góða yfirsýn yfir þróunn katla á þessu svæði sýðustu árinn.
Benedikt G. Ófeigsson (IP-tala skráð) 15.3.2015 kl. 01:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.