Kröflumynstrið komið í Bárðarbungu
25.8.2014 | 06:16
Ég hef verð að bíða eftir því að sjá Kröflumynstrið um breytingar á landhæð í Bárðarbungu. Nú virðist það ef til vill vera komið. Þegar Kröflueldar geisuðu, frá 1975 til 1984, þá var eitt höfuð einkenni þeirra að land innan öskjunnar og umhverfis reis hægt or rólega í nokkrar vikur eða mánuði, eins og fyrsta myndin frá Axel Björnssyni sýnir, þar til landsig gerðist mjög hratt. Þið sjáið að stundum skifti landris metrum í miðju öskjunnar. Siginu fylgdu skyndileg kvikuhlaup neðanjarðar og á stundum lítil sprungugos á yfirborði. Krafla orsakaði byltingu í skilningi okkar á virkni íslenskra eldstöðva, eins og Páll Einarsson hefu bent á. Í dag rakst ég loks á gögn frá GPS mælum umhverfis Bárðarbungu, sem sýna svipað mynstur og Krafla gerði. Þau má finna hér, á vefsíðu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands: http://strokkur.raunvis.hi.is/gps/DYNC_3mrap.png
Önnur mynd sýnir lóðréttu hreyfinguna á GPS stöðinni á Dyngjuhálsi, norður af Bárðarbungu. Lóðrétta hreyfingin er ekki mikil, enda er Dyngjuháls nokkuð langt frá öskju Bárðarbungu, en mynstrið kemur nú fram þrisvar lengst til hæfri á myndinni, með hægfara ris og síðan hratt sig. Risið er að öllum líkindum tengt streymi kviku úr djúpinu og upp í grunna kvikuþró undir öskjunni. Þegar vissri hæð, eða vissum þrýstingi er náð í kvikuþrónni, þá hleypur kvikan út í ganginn og askjan sígur. Gögnin frá Dyngjuhálsi eru uppfærð á átta tíma fresti (rauðu púnktarnir). GPS mælingarnar verða því mikilvægar til að meta hegðun gangsins. Búast má við að lítið gerist í ganginum á meðan landris er hægt og stöðugt, þar til landris nær krítískri hæð. Þá verður kvikuhlaup úr þrónni undir öskjunni og inn í ganginn, sem getur valdið því að gangurinn rýkur áfram norður í gegnum jarðskorpuna eða gýs.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Bárðarbunga, Berggangar | Breytt s.d. kl. 06:17 | Facebook
Athugasemdir
væri staðsetníng þar sem hraunið er nú skásti staðurinn til að hraun komi vegna lanfræðilegrar aðstæðna. ætti að verða lítið tjón nema á möl og grjóti
kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 25.8.2014 kl. 08:35
Hafði Bárðarbunga áhrif á skjálftann við San Francisco - er þetta sitt hvor endinn á sama fleka?
Þórdís Bachmann, 25.8.2014 kl. 11:15
Nei, það eru engin tengsl milli virkni í Bárðarbungu og skjálftans í grennd við San Francisco. Svona smávegis titringur hér hefur engin áhrif á hinn endann á flekanum.
Haraldur Sigurðsson, 25.8.2014 kl. 14:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.