Everest er sirkus
22.4.2014 | 13:43
Mikið er rætt um fjallgöngur á Everest þessa dagana. Dauði 16 burðarmanna frá Nepal í snjóflóði við rætur fjallsins hefur endurvakið umræðu um siðfræði þá, sem ríkir á fjallinu og um sport sem sumir nefna extreme tourism. Hvað vilt þú kosta miklu fé til að komast á toppinn? Vilt þú stefna lífi fátækra burðarmanna í vísa lífshættu, einungis til að koma þér á toppinn? Burðarmenn á fjallinu eru allir Sherpar, og starfa í hálfgerðum þrældómi við að koma auðugum túristum frá vesturlöndum upp á toppinn, hvað sem það kostar.
Sagan sýnir, að það eru nokkra hetjur, sem hafa klifið Everest, einir, án aðstoðar, án súrefnis, og eru Reinhold Messner og Göran Kropp þar í fremstu röð. Árið 1996 kleif svíinn Göran Kropp tindinn Everest aleinn, án súrefnis og án aðstoðar. Hann kleif fjallið eftir að hafa ferðast á reiðhjóli með allan farangur sinn frá Eskiltuna í Svíþjóð. Síðan hjólaði hann aftur heim. Myndin sýnir Göran og reiðhjólið góða. En á sama tíma þegar Göran var á leið niður af fjallinu í miklum stormi, þá voru nokkrir hópar óreyndra fjallgöngumanna á ferðinni, alls 34, og fórust átta manns í storminum, þrátt fyrir allar tilraunir Sherpanna til að koma þeim niður.
Sherparnir bera upp nær allan farangur, tjöld, birgðir, reipi, stiga, súrefniskúta og annað, sem gerir óreyndum túristum færat að komast á fjallið. Síðan er það oft hlutskipti Sherpanna að bókstaflega draga fjallgöngufólkið á toppinn og bera það niður örmagna. Jafnvel sjáfum Sir Edmund Hillary ofbýður nú: Ég held að ástandið varðandi klifur fjallsins Everest sé komið á hryllilegt stig. Fólk vill bara komast á toppinn, hvað sem það kostar. Það sinnir engu varðandi ástand og vandræði annara, sem kunna að vera í lífshættu. Aðrir reyndir fjallamenn segja að nú sé Everst eins og sirkus, og fari stig versnandi.
En þetta er dýrt sport. Þeir sem nú vilja klífa syðri leiðina frá Nepal þurfa að greiða allt að $65 þúsund á mann fyrir ferðina. Hins vegar eru nú í boði klifurferðir upp norður leiðina, undir stjórn Kína, sem kosta aðeins um $10 þúsund.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Ferðalög, Mannfræði | Facebook
Athugasemdir
Hef heyrt sögu af því að hópur fólks hafi skilið einn af leiðangursmönnum eftir deyjandi vegna þess eins að geta sagt að það hafi komist á Everest. Margir hópar hafi síðan gengið framhjá manninum, en skilið hann eftir bjargarlausan þar til að einn hópur kom honum loks niður í læknishendur og hætti við gönguna á fjallið háa.
Að borga 65þúsund dollara á fjallið gerir enginn nema efnaður maður.
Ef það væri einhver dugur í þessu liði sem búið er að njóta starfskrafta Shjerpanna þá ætti það láta góðar peninga summur rakna til aðstandenda þeirra og sína þannig samhug sinn virkilega í verki.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 22.4.2014 kl. 19:39
"Ef það væri einhver dugur í þessu liði sem búið er að njóta starfskrafta Shjerpanna þá ætti það láta góðar peninga summur rakna til aðstandenda þeirra og sína þannig samhug sinn virkilega í verki."
Dream on. Bæði í færslunni og í þinni athugasemd er búið að sýna hversu duglaust þetta lið er og sjálfselskt. Þessu pakki er andskotans sama um Sherpana, líka Íslendingunum, sem ætluðuu að stæra sig af því að hafa komizt á topp Everest, þegar það ætlaði í raun að láta bera sig upp á tindinn af kúguðum Sherpum.
Ég legg til að einhver alþjóðasamtök greiði Sherpum sómasamlega fyrir að aðstoða EKKI þessar liðleskjur. Þá verður hægt að skera úr um hverjir eru hetjur á við Kropp og Messner og hverjir eru ofdekraðir aumingjar.
Pétur D. (IP-tala skráð) 23.4.2014 kl. 12:55
Það eru til margar sögur af fólki sem hefur skilið aðra eftir til að deyja á tindinum til þess eins að stofna ekki möguleikum sínum ,á því að ná á tindinn, í hættu.
Eins eru til sögur af leiðangursmönnum sem hafa skilið sherpana sína eftir þegar björgunarþyrlurnar komu að sækja þá úr vonlausum aðstæðum.
Hlutskipti sherpanna (og innfæddra) er ekki alltaf frábært.
Hitt er annað mál að björgun í mikilli hæð er gríðarlegt afrek, þar sem fyrir flesta er það eitt að komast upp í slíka hæð gríðarlegt afrek. Það að reyna björgun er því ekki endilega eitthvað sem er sjálfgefið og mögulega þýðir það bara að fleiri láta lífið.
Tjörvi Fannar (IP-tala skráð) 23.4.2014 kl. 13:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.