Brennisteinn frá Fimmvörðuhálsi Mældur úr Geimnum
9.4.2010 | 21:49
Árið 2004 var bandaríski gervihnötturinn EOS-Aura settur á braut umhverfis jörðina. (Aura þýðir golan á latínu). Nú mælir hann brennisteinslosun frá eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Um borð í gervihnettinum er tæki sem mælir ýmsar lofttegundir í lofthjúp jarðar, þar á meðal brennisteinstvíoxíð, SO2. Hnötturinn er í 705 km hæð yfir jörðu. Mælingin er nákvæm, en hver mæling nær yfir svæði sem er 13x24 km. Gervihnötturinn er yfir Eyjafjallajökli frá 1:30 til 2 :00 eh. á hverjum degi. Ský trufla nokkuð mælinguna, en í heiðskýru veðri er hún frábær. Daglegar mælingar yfir Íslandi má sjá á vefsíðunni hér.
Myndin til hliðar er frá 7. apríl, sem var heiðskýr dagur á Fimmvörðuhálsi. Mælieiningin er Dobson Units (DU), sem er fjöldi mólekúla af SO2 á fersentimeter í gufuhvolfi. Eitt DU er um það bil 0,0285 grömm af SO2 á fermeter. Það verður fróðlegt að fylgjast með þessum daglegu mælingum, en auðvitað setur veðrið strik í reikninginn.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Eldfjallagas, Eyjafjallajökull | Breytt 10.4.2010 kl. 06:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.