Kólnun og storknun gangsins

Kvikugangurinn sem hefur myndast innan jarđskorpunnar frá Bárđarbungu og undir Holuhrauni hćgir á sér fyrr eđa síđar og byrjar ađ kólna ţegar kvikurennsli stöđvast.  Kólnunin er mjög mikilvćg, ţví einnig hún hćgir á og stöđvar kvikustreymi og stöđvar ţá einnig eldgosiđ.  10 m breiđur gangurKólnun og storknun kviku í slíkum gangi er háđ ýmsum ţáttum:  (a) hita kvikunnar (um 1175 oC fyrir Holuhraun), (b) breidd gangsins (sennilega um 3 metrar í ţessu tilfelli), (c) hita bergsins umhverfis, (d) hitaleiđni eđa einangrun bergsins umhverfis, og (e) hita bergsins umhverfis ganginn.   Hiti bergsins umhverfis er háđur ţví hvađ gangurinn hefur veriđ virkur lengi.   Ţví meiri kvika sem hefur runniđ um ganginn og ţví lengur, ţví heitara verđur bergiđ umhverfis.  

Myndin sýnir kólnun á fremur stórum kvikugangi, sem er 10 metrar á breidd. Hann er í upphafi um 1150 oC heitur, svipađ og kvikan úr Bárđarbungu.  Ţađ tekur hann um rúmt ár (400 daga) ađ kólna um helming. Ţá er kvikan orđin svo seig, ađ hún rennur treglega eđa ekki. Annars er til nokkuđ einföld jafna, sem gerir okkur kleift ađ reikna út lauslega kólnun gangs.  Hún er ţannig:  dt = 3,15  x  w2             Hér er dt tíminn, í dögum, sem tekur fyrir ganginn ađ kólna um helming í miđjunni, en w er breidd gangsins, í metrum.   Tíu metra gangur tekur samkvćmt ţví  um 315 daga ađ kólna um helming í miđju, eđa um eitt ár.  Hins vegar kólnar 3 metra breiđur gangur um helming miklu hrađar, eđa ađeins um 28 daga.  Sem sagt: ţegar gosiđ í Holuhrauni stöđvast, ţá tekur ţađ ganginn um eđa innan viđ einn mánuđ ađ kólna niđur ađ ţví marki, ţegar kvikan er orđin of seig til ađ renna og byrjar ađ storkna. Ţessi gangur gýs aldrei aftur eftir ađ ahnn storknar  og hann myndar fast berg, sem er mjög sterkt.  En ađ sjálfsögđu getur annar gangur myndast síđar samhliđa honum.  


Bloggfćrslur 21. september 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband