Nú vitum við hvers vegna Grindavík er enn lokað

Þetta kom fram á íbúa­fundi Grind­vík­inga hinn 12. des. 2023, sem Morgunblaðið segir frá. ´´Það verða senni­lega eng­in jól hald­in í Grinda­vík þar sem ekki er talið óhætt fyr­ir Grind­vík­inga að flytja aft­ur heim fyr­ir ára­mót. Stór ástæða fyr­ir því að er að Veður­stofa Íslands treyst­ir sér ekki til þess að sjá um ásætt­an­legt eft­ir­lit á svæðinu að næt­ur­lagi.´´

„Veður­stof­an treyst­ir sér ekki til þess að halda úti öfl­ugu eft­ir­liti með svæðinu að næt­ur­lagi,“ sagði Úlfar Lúðvíks­son, lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um.´´   Og svo þetta   ´´Til að halda úti ásætt­an­legu eft­ir­liti, og þar með tryggja ör­yggi Grind­vík­inga í bæn­um, þyrfti m.a. að fá næg­an  mann­skap í verkið og viðeig­andi tækja­búnað, þar sem fyr­ir­vari eld­goss gæti orðið afar lít­ill.´´   „[Það] virðist ekki óhætt í dag að hleypa fólki inn í Grinda­vík á þessu ári,“ sagði hann. Má túlka þetta þannig, að ef Veðurstofan sendir inn á völlin nægilegt lið til að halda vaktir dag og nótt, þá mætti opna bæinn? 

Frá 11. desember 2023  hef ég birt um 20 þætti um jarðskorpuhreyfingar þær sem nú eru í gangi í grennd við Grindavík, í boggi mínu á https://vulkan.blog.is. Viðbrögð voru góð en flettingar á bloggsíðu minni hafa verið alls 1.283.927 til þessa.  Einnig hafa skoðanir mínar komið fram í viðtölum við ýmsa fjölmiðla, innlenda og útlenda. Ég setti strax fram þá skoðun mína  að þessir atburðir væru fyrst og fremst jarðskorpuhreyfingar, tengdar gliðnun Norður Ameríkuflekans til vesturs, frá Evrasíuflekanum í austri.  Kvika væri vissulega fyrir hendi á svæðinu, eins og kom fram í þremur litlum gosum í grennd við Fagradalsfjall árin 2021, 2022 og 2023, en það væri ekki kvika sem ráði ferðinni hér, heldur flekahreyfingar.  

Myndun á bólu eða risi lands um 50 til 100 ferkílómetar að flatarmáli, fyrst í Fagradaldfjallseldstöðinni og síðar í krinum Þorbjörn og Bláa Lónið eru sennilega ótvíræð merki um að hraunkvika er fyrir hendi neðst í eða undir jarðskorpunni. Þrátt fyrir mikla gliðnun og hugsanlega myndun kvikugangs norðan Grindavíkur, þá hefur kvikan ekki náð enn upp á yfirborð.  Myndin sýnir bóluna (rautt) sem markar landris fyrir norðan Grindavík frá 19. nóvember 2023. Kvikuþrýstingur eða kvikumagn í bólunni nálægt botni jarðskorpunnar er ekki nægjanlegt til að valda eldgosi.  Það er ekkert nýtt fyrirbæri á Íslandi, að jarðskorpan rifni og skjálfi, án þess að úr verði eldgos. Bylgjuvixlmynd (18. - 19. nóv. 2023)

Það er ekkert sem bendir til að það sé að vænta breytinga á þessu ástandi á næstunni. Þrátt fyrir það hafa Almannavarnir lokað Grindavíkurbæ og flutt alla íbúa á brott.  Allt bendir til að sú lokun standi fram á næsta ár.  Það er erfitt að gera sér í hugarlund þau áhrif sem langtíma lokun og rýming bæjarins hefur á efnahag og enn fremur á hugarfar og sálarástand íbúanna sem nú eru í útlegð.  Hver og einn getur reynt að seta sig í spor flóttafólksins. Að mínu áliti er lokunin og framlenging hennar ekki réttlætanleg frá sjónarhóli jarðfræðings sem hefur rannsakað eldfjöll í sextíu ár. En skrif mín á blogginu hafa verið eins og hróp í eyðimörkinni. Enginn heyrir, og þeir sem heyra taka ekki mark á skoðunum aðila sem fylgir ekki hinni opinberu línu.  

Mér er reyndar óskiljanlegt hvers vegna Almannavarnir og Veðurstofan hafa haldið áfram lokun á Grindavík.  Íslendingar hafa alltaf vitað að þeir búa á landi þar sem náttúrhamfarir eru óhjákvæmilegur þáttur lífsins.  Það þarf seiglu til að búa á slíku landi og það er viss áhætta, en það er einmitt eitt af aðalsmerkjum Íslendinga.  

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband