Er hægt að nota sig Bárðarbungu til að spá fyrir um goslok í mars 2015?
11.10.2014 | 15:49
Eins og ég hef bent á í síðustu bloggfærslu hér, þá er sigið á íshellunni yfir öskju Bárðarbungu ekki línulegt, heldur kúrva. Sjá myndina sem fylgdi siðasta bloggi. Það er að segja: sigið hægir smátt og smátt á sér með tímanum. Sú kúrva sem passar best við gögnin er sennilega polynomial kúrva. Athugið að sigið er nú um 12 metrar, síðan GPS tækið á miðjum jöklinum tók að senda frá sér mælingar hinn 12. september. Dóttursonur minn Gabriel Sölvi hefur tekið gögnin og kemur upp með eftirfarandi niðurstöðu: “Með því að athuga fallið sem forritið hefur myndað um bestu línu hef ég fundið lággildi þess:
f(x)=-0,0013x^2+0,4486x-0,3885
d/dx(f(x))=f'(x)=-0,0026x+0,4486
f'(x)=0 þ.þ.a.a 0,0026x=0,4486<->x=172,54
Við gerum því ráð fyrir að á 173 degi frá 12. september sé líklegast að gosið muni enda. Sem er held ég í mars 2015. Þá mun sigið hafa orðið f(172,54)=38,3 eða u.þ.b 38 metrar.”
Forsendur fyrir slíkri spá eru þessar: Það er kvikuþró undir Bárðarbungu, á um 8 km dýpi. Kvikuþrýstingur í þrónni leiddi til þess, að kvika braust út og myndaði kvikugang til norðurs, sem kom upp í Holuhrauni. Rennslí kviku út úr þrónni hefur dregið úr þrýstingi inni í henni og valdið sigi á botni öskjunnar fyrir ofan. Með tímanum dregur úr þrýstingi og sigið hægir á sér, og einnig þar með minnkar rennsli upp í Holuhraun. Þetta er einfaldasta sýnin á atburðarásina og ekki endilega sú réttasta, en einhversstaðar verðum við að byrja...
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvað er framundan í Bárðarbungu?
11.10.2014 | 09:55
