Gosið í toppgíg Eyjafjallajökuls heldur áfram

Hlaup úr GígjökliEr það ekki furðulegt að engir jarðskjálftar hafa verið mældir síðan kl. 9 í morgun?  Hins vegar er órói á jarðskjálftamælum mjög mikill.  Til samanburðar var órói í gosinu á Fimmvörðuhálsi mestur um 1000 stig á mælinum á Goðabungu, en er nú um 2500 stig í gosinu sem er nýbyrjað í toppgíg Eyjafjallajökuls.  Mynd dagsins er frá því þegar hlaupvatn eða aur braust út undan Gígjökli, dökkbrúnt, leðjukennt og af svo miklum krafti að úði myndaðist. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér er lýsingin af Gjálpargosinu. http://hraun.vedur.is/ja/viku/1996/vika_40/index.html#mark

Miðað við hana hefur kvikan átt greiða leið  upp á yfirborðið frá því kl 9 í morgun.

Vigfús Eyjólfsson (IP-tala skráð) 14.4.2010 kl. 22:34

2 identicon

Mjög áhugavert blogg. Er að koma inn á bloggið þitt öðru sinni og sem leikmanni er þetta áhugavert. 

Ákvað að setja tengil inn á bloggið hjá þér inn á heimasíðuna mína (ósköp lítil síða reyndar...  en ágætt þá fyrir sjálfan mig að vita af þessum tengli þar).

síðan mín er  

Kjarri (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 04:37

3 identicon

Hér er síðan mín (einhvernvegin tókst mér að klúðra að setja tengilin þarna inn)

http://www.thaiiceland.com/ 

Kjarri (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 04:40

4 identicon

Sæll

Var að velta því fyrir mér, þegar askan berst yfir höfuðborgarsvæðið og nágr. eru vatnsbólin í Heiðmörk í hættu, gæti askan haft áhrif  á grunnvatnið, og lífríkið 

HelgaS (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 17:12

5 Smámynd: Haraldur Sigurðsson

Nei, ég held að öskufall í Heiðmörk  muni ekki hafa nein teljanleg áhrif á vatnsveitiur Reykjavíkur. Vatnið sem berst til Reykjavíkur er grunnvatn úr lindum sem koma undan hrauni. Hraunið er frábær sía ða ösku og önnur efni.   Hins vegar myndi öskufall yfir Reykjavík vera mjög óþægilegt í augu og andfæri borgara, og smjúga ínn í húsakynni.  Askan er ótrúlega fíngerð og er eiginlega líkari rkyi en sandi.

Haraldur Sigurðsson, 15.4.2010 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband