Fyrstu landnemar Ameríku?

cc_CMS-Excavation-17_16x9Mannkyn átti uppruna sinn í Afríku fyrir meir en milljón árum og geislađi síđan í allar áttir. Ţađ er merkilegt ađ Ameríka virđist hafa veriđ síđasta meginlandiđ sem menn námu land á. Ţađ er almennt taliđ ađ fyrstu mennirnir hafi komist til Ameríku fyrir um 14 ţúsund árum, ţegar sjávarstađa var lćgri um allan heim og ţá var fćrt fyrir fótgangandi frá austur Asíu yfir Beringsund til Norđur Ameríku.  Jafnvel Ástralía var mönnuđ miklu fyrr, eđa fyrir um 40 ţúsund árum.

En ţessi kenning er ef til vill ađ breytast á mjög róttćkan hátt, ef taka má mark á fornleifarannsóknum á minjum sem komu fram viđ vegavinnu nćrri San Diego í Kaliforníu. Bein af mastodon (skyldur lođfílum) komu fram í vegavinnunni áriđ 1992. Frekari rannsókn hefur leitt í ljós ađ mikiđ af beinunum eru brotin. Ţetta er engin smábein og ţarf mikiđ afl til ađ brjóta slíkt, sennilege stórar steinsleggjur bundnar á trjágreinar. Ţá hafa fundist steinar (15 kg) í uppgreftrinum, sem gćtu veriđ verkfćri. Ţađ sem gerir ţetta hugsanlega mjög mikilvćga uppgötvun er aldursgreining beinanna, 130 ţúsund ár. Ef beinin hafa veriđ brotin af mönnum, eins og nú er haldiđ fram, ţá komust menn međ einhverjum leiđum alla leiđ til Ameríku löngu fyrr en áćtlađ var. Ef ţetta er rétt, ţá er hér elsti fornleifafundur í Ameríku. Hvernig voru ađstćđur í heiminum á ţeim tíma? Fyrir um 120 til 140 ţúsund árum var hlýskeiđ, međ loftslag á jörđu mjög líkt ţví sem ríkir í dag.

Hingađ til hafa ekki fundist nein mannabein á stađnum. Ţar til slíkar minjar finnast ţá verđur ađ taka ţessa kenningu međ miklum fyrirvara, en nú er unniđ af kappi á stađnum viđ ađ leita frekari minja.  En ţađ er athyglisvert ađ ef hér er um menn ađ rćđa, ţá voru ţeir sennilega Neanderthal, ţví nútúmamađurinn kom seinna út úr Afríku.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Homo Trumpensis, huge, builder of walls and eater of great steaks, unbelievable!!

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.4.2017 kl. 10:27

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

http://news.nationalgeographic.com/2017/04/mastodons-americas-peopling-migrations-archaeology-science/

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 27.4.2017 kl. 10:49

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband