Hreyfimynd af Bárđarbungu, fyrri hluti

Skjálftavirknin undir Bárđarbungu hófst hinn 16. ágúst 2014.  Síđan hefur Veđurstofa Íslands skráđ mörg ţúsund skjálfta, bćđi undir Bárđarbungu og í kvikuganginum, sem teygir sig til norđurs um 70 km veg, alla leiđ í grennd viđ Öskju.  Til ađ skilja skjálftavirknina betur, ţá ţarf ađ skođa hana í tíma og rúmi. Margir hafa beitt ýmsu forritum og gert tilraun til ađ skapa hreyfimynd úr ţessum merkilegu gögnum Veđurstofunnar.  Ađ mínu mati er besta hreyfimyndin sú, sem hér fylgir međ.  Hana hefur Einar Hjörleifsson skapađ. Betri útgáfa af myndbandinu er á YouTube hér: https://www.youtube.com/watch?v=3PTEDxrIRoM

eđa hér: <iframe width="640" height="360" src="//www.youtube.com/embed/3PTEDxrIRoM?feature=player_detailpage" frameborder="0" allowfullscreen></iframe>

eđa á mbl.is hér: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/09/19/skjalftavirknin_skodud_i_tima_og_rumi/

Kortiđ er frá Landmćlingum Íslands. Skjálftastađsetningar eru frá Veđurstofu Íslands.  Stćrđ jarđskjálfta er sýnd međ stćrđ hringja. Rauđir hringir sýna skjálfta síđustu klukkutímana.  Síđan verđa ţeir bláir púnktar.   Klukkan efst til vinstri sýnir ár, mánuđ, dag, klukkustund og mínútur.  Ţessi bíómynd er nokkuđ hröđ, en hver klukkutími í raunveruleikanum er innan viđ eina sekúndu hér í bíó.  Neđri glugginn sýnir dreifingu skjálfta á ţversniđi frá vestri til austurs í gegnum Vatnajökul og nágrenni.  Lóđrétti ásinn er dýpi, í kílómetrum, niđur í 20 km, en ţađ eru nokkurn veginn neđri mörk jarđskjálftanna.  Langflestir skjálftar eru á bilinu 5 til 12 km.  Hćgri glugginn sýnir samskonar ţversniđ, en ţar er ţađ skjálftavirknin í suđur-norđur átt, niđur í 20 km. Ţessi gluggi sýnir ţví mjög vel hvernig kvikugangurinn mjakast norđur á bóginn, undan Dyngjujökli og í átt til Öskju.  Glugginn neđst til hćgri sýnir fjölda skjálfta á dag, bćđi undir Bárđarbungu og  umhverfis kvikuganginn til norđurs.  Skjálftar af stćrđinni 3 og stćrri eru sýndir međ rauđu í ţessum glugga.   Hér í ţessari bíómynd kemur í heild vel fram myndrćnt samhengi milli skjálftavirkni í Barđarbungu og í kvikuganginum, fyrst til austurs og síđan til norđurs.   Hér eru nokkrar athuganir viđ virknina, en atburđarásin er hröđ:

1. Skjalftar hefjast í norđur brún öskju Bárđarbungu á 5 til 10 km dýpi seint hinn 15. ágúst.  Ţeir dreifa sér fljótlega í hring um öskjubrúnina hinn 16. ágúst. 

2. Um hádegisbil hinn 16. ágúst  brýst kvikugangur út úr Bárđarbungu og stefnir hratt til suđausturs. 

3. Um klukkan 22 ţann dag (16. ágúst) breytir kvikugangurinn snögglega um stefnu til norđausturs á um 10 km dýpi. Skjálftar eru einnig öđru hvoru undir Kistufelli í norđvestri á 5 til 10 km dýpi. 

4. Kvikugangurinn ţróast til norđausturs allt til um klukkan 8 hinn 23. ágúst.

5. Klukkan 9 ađ morgni hinn 23. ágúst gerist ótrúlega snöggt stökk, ţegar kvikugangurinn hliđrast til vesturs og rýkur áfram hratt til norausturs á 10 til 15 km dýpi.   Ţessi leiftursókn er eiginlega stórkostlegasti atburđurinn í ţessari virkni Bárđarbungu.   Sennilega hefur hár kvikuţrýstingur veriđ kominn í kvikuţrónni og í kvikuganginum, en nú fengiđ skyndilega útrás, ţegar kvikan fann sér leiđ ađeins vestar og inn í nýja sprungu til norđausturs.  Samtímis heldur skjálftavirkni áfram undir öskjubrúnum Bárđarbungu. 

6. Kl. 7 ađ morgni hinn 24. ágúst hefur kvikugangurinn náđ norđur brún Dyngjujökuls, en hér grynnkar hann í fyrsta sinn og sendir upp skjálfta grynnir en 5 km.   Meginvirknin er samt enn á 10 til 15 km dýpi. 

7. Kvikugangurinn heldur áfram til norđausturs en byrjar ađ hćgja á sér um kl. 6 ađ morgni hinn 26. ágúst.   Ţar á eftir er skjálftavirkni víđa í ganginum eđa  ofan hans.

8. Um kl. 10 um morguninn hinn 29. ágúst hófst eldgosiđ,, samkvćmt mynd úr gervihnetti.   Á ţeim tíma var skjálftavirkni dreifđ í ganginum norđan Dyngjujökuls. 

Viđ ţökkum Veđurstofu Íslands fyrir leyfi ađ birta skjálftagögnin.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband