Kýraugað á Geysi

 Skymaster LoftleiðaMér hefur ekki tekist að finna góða mynd af Geysi Loftleiða, en hér er mynd af Heklu, sem einnig var Skymaster DC-4 vél. Hé situr Hekla TF-RVH á Idlewild flugvelli í New York.  Nú er hann kallaður Kennedy flugvöllur.  Myndina tók Rasmus Pettersen fyrir framan gömlu International Airlines Building. Takið eftir kúlulaga glugganum eða kúpta kýrauganu á þaki stjórnklefans. Þar gat siglingafræðingur eða navigator áhafnarinnar kíkt út, beitt sextantinum og gert staðarákvörðun.  Í fluginu fræga árið 1950 var Guðmundur Sívertsen siglingafræðingur á Geysi.   Við rannsókn á brotlendingunni varð ljóst að hann hafði gefið flugstjóranum  upp kolranga staðsetningu. Hann viðurkenndi fyrir rétti að hann og fleiri af áhöfninni hefðu verið við skál.  http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3191243     Hann var ákærður fyrir afglöp í starfi og hlaut dóm.  Í fyrra bloggi minntist ég á að fjöldi hunda hefðu verið með í farangrinum, í rimlabúrum.  Hundunum 18 var lóað, nema einum shafer hundi, en hann týndist síðar á leiðinni niður af jöklinum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Hér er áhugaverð grein um íslenska Skymaterinn DC-4

http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/808641/

Júlíus Valsson, 18.9.2014 kl. 09:16

2 identicon

Sæll Haraldur.

Ég sló inn TF-RVH á www.airliners.net og fann 2 myndir í ágætis upplausn.

http://www.airliners.net/photo/Loftleidir---Icelandic/Douglas-C-54A-Skymaster/0298909/L/

http://www.airliners.net/photo/Loftleidir---Icelandic/Douglas-C-54A-Skymaster/0100804/L/

Hermann Hafsteinsson (IP-tala skráð) 18.9.2014 kl. 10:08

3 Smámynd: Haraldur Sigurðsson

Já, en eru þetta ekki myndir af Heklu?  Ekki Geysir.

Haraldur Sigurðsson, 18.9.2014 kl. 10:17

4 Smámynd: Júlíus Valsson

Jú, það hlýtur einhver að luma á góðum myndum af Geysi en voru þessar vélar ekki alveg eins?

Júlíus Valsson, 18.9.2014 kl. 10:21

5 Smámynd: Haraldur Sigurðsson

Jú, Hekla var eins vél, en samt ekki sama vélin!  Brann Hekla á Ítalíu?

Haraldur Sigurðsson, 18.9.2014 kl. 10:41

6 identicon

Sælir, samkvæmt þessum upplýsingum þá brann TF-RVH Hekla (I) í Pisa.

 http://www.edcoatescollection.com/ac5/ROW%20Europe/TF-RVH.html

There were two TF-RVHs, both DC-4s.  Both carried the name 'Hekla'.  .This is the second one acquired in May 1952. The first (c/n 7485) was destroyed by fire whilst landing at Pisa, Italy in January of 1952.

Kjartan (IP-tala skráð) 18.9.2014 kl. 12:23

7 identicon

Kjartan (IP-tala skráð) 18.9.2014 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband