Eldgos í Síle lokar á flugið

Cordon CaulleÍ öllum þeim óróa sem ríkt hefur í jarðskorpunni hér á landi í ár, þá hafa margir sjálfsagt ekki tekið eftir merkum atburði á suðurhveli jarðar.  Það er eldgosið í fjallinu Puyehue-Cordon Caulle í Síle, sem hefur nú hvað eftir annað stöðvað flugumferð í nokkrum löndum Suður Ameríku, Suður Afríku, Ástralíu og Nýja Sjálandi.   Jarðskjálftavirkni jókst undir Puyehue-Cordon Caulle í lok apríl 2011 og í byrjun júni var virknin komin í um 60 skjálfta á klukkutíma. Hinn 3. júní árið 2011 voru 230 skjálftar á klukkutíma, og 4. júní hófst sprengigos í Cordon Caulle gígnum.  Fyrsta myndin sýnir gjóskustrókinn upp af eldfjallinu. Umhvefis hnöttinnGjóskustrókurinn fór strax í yfir 12 km hæð og gjóskuflóð streymdu yfir nágrennið. Næsta dag hafði gjóskumökkurinn borist til austurs yfir Argentínu og út á Atlantshaf.  Eldfjallið er staðsett á um 40,5 gráðu suðlægrar breiddar, og fylgdi askan nokkurn veginn þessari breiddargráðu umhverfis hnöttinn. Þá barst askan yfir suður odda Suður Afríku, og síðan áfram austur yfir Ástralíu í um 6 til 13 km hæð. Þar varð að loka flugvöllum í Sidney og Melbourne og flugfélögin Qantas og Virgin hættu við flug á þessa staði. Vegna lokunar á flugvöllum voru hundruðir þúsunda strandaglópar, og meir en sjö hundruð flugferðum var aflýst.  Áhrifanna gætir enn í Argentínu og í Síle, þar sem flugsamgöngur hafa verið lamaðar.  Líkan af öskudreifinguÖskumökkurinn hefur nú borist nokkra hringi umhverfis jörðina, frá vestri til austurs, eins og önnur myndin sýnir.  Þriðja myndin er frá Veðurstofu Kanada, og sýnir dreifingu öskunnar á suður hveli jarðar. Ég vil sérstakelga benda á hreyfimynd af líkani sem Kanadamenn hafa gert, en hana má skoða hér:

http://eer.cmc.ec.gc.ca/people/Alain/eer/emergencies/fd92kH73sSJDiO76bxpJK/Cordon_Caulle/exp_05/TCC/anim.html

Gosinu er ekki lokið, og er hætt við að áhrifa þess gæti áfram á flugsamgöngur á suðurhveli jarðar um tíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, það er gott að hafa þig hér til að minna okkur á að fleiri glíma við náttúruna en við hér á litla en öfluga Íslandi :)

Gaman þætt mér ef þú værir til í að skrifa um Mt. Pelee eldfjallið og það sem gerðist þar 1902, þ.e. ef þú hefur ekki nú þegar skrifað um það og ég hafi misst af þeirri færslu!

Kv.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 12.7.2011 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband