Barst Jaspis frá Íslandi til Grćnlands og Vínlands?

jaspis SnćfellsnesGengu allir fornmenn á Íslandi međ jaspis í vasanum eđa pyngjunni til ađ kveikja međ eld?  Steinninn jaspis er fremur algengur á Íslandi.  Hann myndast ţegar jarđhitavatn berst upp sprungur í jarđskorpunni og ber međ sér mikiđ magn af kísil (SiO2) í upplausn í vatninu.  Viđ vissar ađstćđur fellur kísillinn út úr heita vatninu og myndar jaspis í sprungum og holum í berginu.  Jaspis er nćr hreinn kísill, en međ dálitlu af ţrígildu járni, sem gefur ţví rauđa, brúnleita eđa grćna litinn.  Jaspis er mjög ţétt efni, sem brotnar nćstum eins og gler og er međ gljáandi og fallega brotfleti.  Hann er mjög harđur og mun jaspis hafa hörkuna 7 á Mohs skalanum.   Jaspis er alls ekki gegnsćr.  jaspisEf slíkur steinn er gegnsćr, ţ.e.a.s. hleypir einhverju ljósi í gegn, ţá er hann nefndur agat, sem hefur nokkuđ sömu efnasamsetningu og jaspis.   Ţađ er margt sem bendir til ađ jaspis hafi veriđ notađur áđur fyrr til ađ kveikja eld  hér á landi.  Sennilega er ţađ jaspis sem átt er viđ, ţegar tinna er nefnd.  Til dćmis skrifa Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson (1772) um jaspis í Ferđabókinni og segja hann líkjast  „tinnu ađ hörku, og eins hrökkva auđveldlega neistar úr honum.“  Jaspis var sleginn međ eldjárninu til ađ mynda neista og kveikja eld.  Áriđ 2000 kom út mikil bók í Bandaríkjunum (Vikings, the North Atlantic Saga), sem fjallađi um víkingana og ferđir ţeirra  til Grćnlands og Vínlands. Ţar kom Kevin Smith fram međ upplýsingar um jaspis mola, sem höfđu fundist í víkingabúđum í L´Anse aux Meadows á Nýfundnalandi í Kanada.  Samkvćmt efnagreiningu taldi hann ađ fimm ţeirra vćru frá Íslandi, en fjórir frá bergi á Nýfundnalandi.  Ţví miđur hafa gögnin um ţessa efnagreiningu aldrei veriđ birt, svo viđ hin getum ekki metiđ hvađa rök Smith og félagar hafa fyrir ţví ađ sumir jaspis steinarnir í L´Anse aux Meadows séu íslenskir.  En ţađ er vissulega spennandi ađ velta ţví fyrir sér hvort norrćnir menn hafi flutt međ sér í vasanum jaspis frá Íslandi, til Grćnlands og svo síđar til Vínlands.  En leyfiđ okkur lesendum ađ sjá gögnin sem eru á bak viđ slíkar stađhćfingar!  Áriđ 2004 fannst fornt eldstćđi í Surtshelli.  Hellirinn er í hrauni, sem rann sennilega á tíundu öld. Viđ eldstóna fundust brot af jaspisflögum, sem er sennilega vitneskja um ađ jaspis hafi veriđ notađur viđ ađ kveikja eld í stónni.   jaspis KanadaÁriđ 2008 fundust fleiri jaspis steinar skammt frá rústum norrćnna manna í  L’Anse aux Meadows.  Ţeir reyndust vera frá bergi í Notre Dame Bay, ţar skammt frá.  Seinni myndin sýnir ţann jaspis stein.  Jaspis er nokkuđ algengur í elstu bergmyndunum Íslands, eđa blágrýtismynduninni frá Tertíer tíma. Jaspisinn myndar holufyllingar í gömlum basalt hraunlögum og finnst oft á Vesturlandi og víđar.  Sumir jaspis steinar geta veriđ allstórir eđa allt ađ 50 kg, eins og sjá má til dćmis í Eldfjallasafni í Stykkishólmi. 


Bloggfćrslur 13. ágúst 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband