Huang Nubo tókst ţađ ekki, en CNOOC er komin inn, međ Eykons hjálp

Áriđ 2011 munađi litlu ađ Kínverski auđmađurinn Huang Nubo nćđi fótfestu á 300 Eykon á Drekaferkílómetra eign á Grímsstöđum á Fjöllum. Máliđ vakti mikla athygli og deilur, en flestir Íslendingar voru hreinlega furđu lostnir á ţessum áhuga Kínverja á landssvćđi inni á örćfum og viđ fengum aldrei fulla skýringu á hvađ Kínverjar vćru eiginlega ađ fara. Ţađ mun hafa veriđ skelegg mótstađa Ögmundar Jónassonar innanríkisráđherra, sem kom í veg fyrir ađ svo fćri. Nubo er nú horfinn af sjónarsviđinu, en ađrir Kínverskir umbođsmenn eru komnir í stađ hans og í ţetta sinn hefur ţeim tekist ađ koma sér fyrir í Íslenskri lögsögu, ađ ţví er virđist á ţess ađ nokkur taki varla eftir.   Sérleyfi var veitt til olíuleitar á Drekasvćđinu í janúar 2014. Leyfiđ var veitt til CNOOC Iceland ehf. sem rekstrarađila međ 60 % hlut, Eykon Energy ehf., međ 15 % hlut og Petoro Iceland AS međ 25 % hlut. CNOOC er China National Offshore Oil Corporation, risastórt Kínverskt olíufélag, sem er eigandi margra borpalla og rćđur yfir miklu fjármagni. Ţeir eru fćrir um ađ bora margar borholur, en ein slík getur kostađ eins og heil Harpa, eđa marga tugi milljarđa. Orkuleitarfyrirtćkiđ sem nú er skráđ inn á Drekasvćđinu er undir nafninu Eykon Energy, en nú vitum viđ ađ Kínverski olíurisinn CNOOC er 60% meirihluta hlutafi í Eykon.   Ţannig hafa Kínverjar náđ fótfestu án nokkura mótmćla innan Íslenskrar lögsögu. Drekinn er ađ verđa Kínverski Drekinn. Ţetta eru tímamót, ekki einungi á Íslandi, heldur á öllum norđurslóđum: fyrsta Kínverska fyrirtćkiđ, sem kemur sér fyrir í ţessum heimshluta, ţrátt fyrir mótstöđu Kanada, Bandaríkjanna og Rússa. Sennilega er mikilvćgara fyrir Kína ađ komast inn á norđurskautasvćđiđ, en ađ finna hér olíu. Ţađ var sennilega alla tíđ markmiđ Nubos, ađ komast inn, án ţess ađ hafa áhyggjur af hagnađi eđa viđskiftalíkani rekstursins. Loksins komast Kínverjar inn á norđurskautasvćđiđ, í gengum Ísland, ţrátt fyrir mótstöđu stórveldanna. Fáir hér á landi virđast gera sér grein fyrir ţví, ađ viđ erum orđinn leppur í refaskák stórveldanna á ţennan hátt. Jú, ađ vísu gćtum viđ fengiđ einhverjar tekjur af ţessum leik, ţví skattlöggjöf tryggir Íslendingum hluta af tekjum, allt ađ 50%, EF einhver olía finnst á Drekasvćđinu. En, eins og ég hef áđur bloggađ um hér fyrir neđan, ţá eru vissar jarđfrćđilegar ađstćđur, sem benda á ađ mjög litlar líkur séu á olíu undir Drekasvćđinu. Ţađ skiftir Kínverja ekki miklu máli, af ţví ađ alţjóđapólítík, ekki gróđasjónarmiđ, er ađalmarkmiđ Kínverja á norđurslóđum. Ţeir vilja fyrst og fremst koma löppinni í gćttina.

En hvađ um CNOOC? Ţar kemur margt fremur skuggalegt í ljós. Dagblađiđ DV birti í júní 2013 umfjöllun um ţennan vafasama Kínverska olíurisa áriđ 2013.  CNOOC hóf fyrir nokkru samvinnu međ heróín og opíum baróninum Lo Hsing Han viđ olíuleit í Burma í fyrirtćkinu Goldern Aaron.  Frekari fróđleik um CNOOC, samstarf ţess viđ Lo Hsing Han og viđleitni til ađ komast inn í Grćnland og Ísland má finna á vefsíđu Jichang Lulu hér: http://jichanglulu.tumblr.com/iceland-jan-mayen-cnooc


Bloggfćrslur 20. nóvember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband