Bláa móđan frá Holuhrauni

BlámóđanHvers vegna er móđan frá eldstöđvunum í Holuhrauni blá? Myndin fyrir ofan er dćmi um blámóđuna, eins og hún lítur út frá geimnum.  Hún er reyndar blá á sama hátt og himininn er blár. Litur á efni eđa hlut er ađ mestu leyti ákvarđađur af ţví hvernig efniđ drekkur í sig litrófiđ.  Rauđur bolti er rauđur vegna ţess ađ hann drekkur í sig alla liti litrófsins NEMA ţann rauđa.  Rauđa ljósiđ endurkastast frá boltanum og ţađ er ţví liturinn sem viđ sjáum.   Ljósiđ sem kemur frá sólinni er hvítt, en er reyndar í öllum regnbogans litum, eins og Isaac Newton sýndi fram á, fyrstur manna.   Lofthjúpurinn inniheldur margar tegundir gaskenndra efna.  Ţegar sólarljósiđ berst inn í lofthjúpinn, ţá dreifist hluti af ljósinu, en efni í lofthjúpnum drekka í sig annan hluta ljóssins.  Ađeins um 75% af ljósinu berst alla ţeiđ niđur ađ yfirborđi jarđar.   Himinninn er blár vegna ţess ađ gas og frumefni í lofthjúpnum drekka í sig flestar bylgjulengdir litrófsins nema bláa litinn.  Sá blái er á ţeim hluta litrófsins sem hefur mun styttri bylgjulengd (um 400 nm) en til dćmis rautt og grćnt.    Hvort ţađ eru mólekúl, agnir eđa gas frumefni í lofthjúpnum, ţá hafa ţau sömu áhrif á litróf sólarljóssins.  Móđan frá eldgosinu samanstendur af bćđi dropum, mólekúlum og gaskenndum frumefnum, sem dreifa og drekka í sig itróf sólarljóssins á ýmsan hátt.  En eldfjallsmóđan drekkur ekki í sig bláa hluta litrófsins og ţví er móđan bláleit.


Besta myndin af Holuhrauni

HoluhraunNASA gaf út nýlega ţessa mynd, en hún er tvímćlalaust besta myndin af Holuhrauni hinu nýja.  Drullugur Dyngjujökull er í suđri, í norđri er Askja, međ Öskjuvatn og ţar skammt frá er dyngjan Vađalda. Rétt fyrir vesta Holuhraun er dyngjan Urđarháls í norđur rönd Dyngjujökuls og ţar rétt hjá er Kistufell. Móđuna ber til austurs, en takiđ eftir ađ móđan kemur öll upp frá virku gígunum, ekki hinu renanndi hrauni, sem streymir í norđaustur átt.

Bloggfćrslur 15. október 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband